Breyting á Aðalskipulagi við Völuvöll
Breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 – Tímabundið íbúðarsvæði við Völuvöll á Bíldudal
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum 17. febrúar 2021 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018.
Skrifað: 23. febrúar 2021
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum 17. febrúar 2021 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í því að skilgreint er svæði fyrir íbúðarbyggð við golf- og íþróttavöll á Bíldudal. Um er að ræða tímabundna ráðstöfun á á landi vegna bráðvanda á íbúðarhúsnæði á Bíldudal. Í gildandi aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags 15. febrúar 2021 í mkv. 1: 10.000.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Vesturbyggðar.