Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Bíldudalsskóli og Íþróttaskólinn óska eftir starfsmanni
Vilt þú slást í hópinn?
Skrifað: 19. ágúst 2024
Bíldudalsskóli og Íþróttaskólinn leita að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni, annars vegar til stuðnings í kennslu og hins vegar til að sjá um íþróttaskólann.
Menntunar og hæfniskröfur
- Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Hefur ánægju af að starfa með börnum
- Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
- Jákvæðni og sveiganleiki í samskiptum
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst 2024
Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veita Hafdís Helga Bjarnadóttir, tómstundafulltrúi, og Lilja Rut Rúnarsdóttir. Umsóknir skulu berast á netfangið liljarut@vesturbyggd.is.