Aðalskipulag Vesturbyggðar 2018-2035, niðurstaða bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur þann 15. september 2021 samþykkt Aðalskipulag Vesturbyggðar 2018-2035 í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Skrifað: 15. nóvember 2021
Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 24. júní 2021. Fimm athugasemdir bárust á auglýsingatíma. Bæjarstjórn hefur afgreitt athugasemdirnar og sent þeim sem gerðu athugasemdir umsögn sína. Athugasemdirnar gáfu tilefni til breytinga á tillöguninni er varða m.a. eftirtalin atriði:
Bætt var við í almenn ákvæði á kafla 4.2.1. og 7.1 ákvæði um umferðaröryggi á Krossholtum. Skerpt á ákvæðum um hitaveitu og ennig voru skipulagsgögn lagfærð m.t.t. afgreiðslubréfs Skipulagsstofnunar.
Hér fyrir neðan má nálgast yfirlit yfir breytingar sem gerðar hafa verið á aðalskipulagsgögnum eftir auglýsingu þess.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins. Við gildistöku þess fellur eldra skipulag úr gildi, Aðalskipulag Vesturbyggðar 2006-2018 sem tók gildi 15. desember 2006.
Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála skv. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt aðalskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum um aðalskipulagið og niðurstöðu bæjarstjórnar Vesturbyggðar er bent á heimasíðu sveitarfélagsins vesturbyggd.is eða að hafa samband við Ráðhús Vesturbyggðar, Aðalstræti 75 á Patreksfirði í síma 450-2300.