Málsnúmer 2407023
19. ágúst 2024 – Bæjarráð
Lögð fyrir tilboð í byggingu leik- og grunnskóla á Bíldudal.
Björn Jóhannesson lögmaður sveitarfélagsins sat liðinn ásamt Magnúsi Árnasyni og Geir Gestsssyni starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs Vesturbyggðar.
Bæjarráð Vesturbyggðar hefur yfirfarið öll tilboð sem borist hafa vegna útboðs á byggingu grunnskóla og leikskólabyggingar á Bíldudal.
Þrjú tilboð bárust í verkið, tvö þeirra uppfylltu skilyrði útboðsins.
Kostnaðaráætlun fyrir verkið nam 380.485.217 kr.
Land og verk 525.045.191 kr. 138% af kostnaðaráætlun
Hrífunesskógur 551.180.220 kr. 145% af kostnaðaráætlun
Eftir skoðun og mat hefur bæjarráð ákveðið að hafna báðum tilboðum þar sem þau voru bæði verulega yfir kostnaðaráætlun.
Bæjaráð samþykkir að fela sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs taka saman minnisblað um næstu skref í málinu.
Samþykkt samhljóða.
27. ágúst 2024 – Bæjarráð
Lagt fyrir minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasvið varðandi næstu skref í tengslum vð útboð Bíldudalsskóla.
Fulltrúar heimastjórnar Bíldudals Rúnar Örn Gíslason og Valdimar Bernódus Ottósson ásamt sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasvið sátu fundinn undir liðnum.
Bæjarráð heimilar sviðstjóra umhverfis- og framkvæmdarsviðs að fara af stað með undirbúning á lóð fyrir grunn að byggingu Bíldudalsskóla.