Málsnúmer 2310058
8. nóvember 2023 – Skipulags og umhverfisráð
Lögð fram umsókn Árna Kópssonar dagsett 26.10.2023 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir borun eftir köldu vatni í Dufansdal.
Skipulags- og umhverfisráð mælist til að bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykki að veitt verði framkvæmdaleyfi til borunar eftir köldu vatni sbr. umsókn. Skipulags- og umhverfisráð metur að framkvæmdin sé þess eðlis að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Þá verði skipulagfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfið.
15. nóvember 2023 – Bæjarstjórn
Lögð fram umsókn Árna Kópssonar dagsett 26.10.2023 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir borun eftir köldu vatni í Dufansdal.
á 111, fundi skipulags- og umhverfisráðs lagði ráðið til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að samþykkt að verði að veita framkvæmdaleyfi til borunar eftir köldu vatni sbr. umsókn. Skipulags- og umhverfisráð mat sem svo að framkvæmdin væri þess eðlis að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Þá verði skipulagfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfið.
Til máls tók: Varaforseti
Bæjarstjórn samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.