Málsnúmer 2310052
8. nóvember 2023 – Skipulags og umhverfisráð
Lögð fram umsókn Gunnars Ingva Bjarnasonar dagsett 24.10.2023 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuvegi að frístundalóðunum að Sælulundi og Sjónarhól á Barðaströnd. Með umókninni fylgja samþykki Vegagerðarinnar sem og landeiganda Haga fyrir tengingunni.
Skipulags- og umhverfisráð mælist til að bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykki að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuveginum sbr. umsókn. Skipulags- og umhverfisráð metur að framkvæmdin sé þess eðlis að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda enda liggi fyrir samþykki landeigenda og Vegagerðarinnar. Þá verði skipulagfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfið.
15. nóvember 2023 – Bæjarstjórn
Lögð fram umsókn Gunnars Ingva Bjarnasonar dagsett 24.10.2023 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuvegi að frístundalóðunum að Sælulundi og Sjónarhól á Barðaströnd. Með umókninni fylgja samþykki Vegagerðarinnar sem og landeiganda Haga fyrir tengingunni.
Á 111. fundi skipulags- og umhverfisráðs lagði ráðið til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að samþykkt verði að veita framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuveginum sbr. umsókn. Skipulags- og umhverfisráð mat sem svo að framkvæmdin væri þess eðlis að heimilt væri að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda enda liggi fyrir samþykki landeigenda og Vegagerðarinnar. Þá verði skipulagfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfið.
Til máls tók: Varaforseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuveginum sbr. umsókn. Þá verði skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfið.
Samþykkt samhljóða