Málsnúmer 2308006
11. september 2023 – Skipulags og umhverfisráð
Erindi frá Magdalenu Lawicki, dags. 8. ágúst 2023. Í erindinu er óskað eftir endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Túngötu 16, Patreksfirði. Erindinu fylgir nýtt lóðablað unnið af byggingarfulltrúa Vesturbyggðar.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að endurnýjun lóðarleigusamningsins verði samþykkt.
13. september 2023 – Bæjarstjórn
Tekið fyrir erindi frá Magdalenu Lawicki, dags. 8. ágúst 2023. Í erindinu er óskað eftir endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Túngötu 16, Patreksfirði. Erindinu fylgir nýtt lóðablað unnið af byggingarfulltrúa Vesturbyggðar.
Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 109. fundi sínum þar sem það lagði til við bæjarstjórn að endurnýjun lóðarleigusamningsins verði samþykkt.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun lóðarleigusamningsins.