Málsnúmer 2302091
9. mars 2023 – Velferðarráð
Endurskoðun á reglum um fjárhagsaðstoð. Farið var yfir tillögur að breyttum reglum. Starfsmönnum fjölskyldusviðs falið að gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund.
25. maí 2023 – Velferðarráð
Velferðarráð hefur endurskoðað reglur um fjárhagsaðstoð. Reglunum er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
21. júní 2023 – Bæjarstjórn
Velferðarráð hefur endurskoðað reglur um fjárhagsaðstoð. Reglurnar voru teknar fyrir á 47. fundi ráðsins þar sem þeim var vísað áfram til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Til máls tók: Varaforseti
Bæjarstjórn staðfestir reglurnar samhljóða.