Málsnúmer 2302039
10. október 2023 – Bæjarráð
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 10., 11. og 12. fundar samstarfsnefndar vegna sameiningaviðræna Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.
7. febrúar 2023 – Bæjarráð
Á fundi verkefnastjórnar um óformlegar sameiningaviðræðnur Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar sem haldinn var 1. febrúar sl. var samþykkt samhljóða að vísa tillögu um að hefja formlegar sameiningaviðræður milli Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar til sveitarstjórna sveitarfélaganna. Verði tillagan samþykkt er óskað eftir því að hvort sveitarfélag tilnefni þrjá sveitarstjórnarfulltrúa í samstarfsnefnd vegna sameiningar sveitarfélaganna.
Bæjarráð Vesturbyggðar leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að skipa sex fulltrúa í samstarfsnefnd, þ.e. þrír frá hvoru sveitarfélagi, sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. gr. sveitarstjórnarlaga.
Stefnt skuli að því að samstarfsnefndin skili áliti sínu til sveitarstjórna í maí næstkomandi með það fyrir augum að formleg kynning tillögunnar hefjist í ágúst og að kjördagur verði fyrir lok árs 2023. Samstarfsnefndinni er falið að setja verkefninu nánari verkáætlun og tímaramma.
Tillaga þessi er lögð fram í kjölfar óformlegra viðræðna fulltrúa sveitarfélaganna og samráðs við innviðaráðuneytið og Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn skipi fulltrúa Vesturbyggðar til setu í samstarfsnefndinni.
15. febrúar 2023 – Bæjarstjórn
Á fundi verkefnastjórnar um óformlegar sameiningaviðræðnur Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar sem haldinn var 1. febrúar sl. var samþykkt samhljóða að vísa tillögu um að hefja formlegar sameiningaviðræður milli Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar til sveitarstjórna sveitarfélaganna. Verði tillagan samþykkt er óskað eftir því að hvort sveitarfélag tilnefni þrjá sveitarstjórnarfulltrúa í samstarfsnefnd vegna sameiningar sveitarfélaganna.
Stefnt skuli að því að samstarfsnefndin skili áliti sínu til sveitarstjórna í maí næstkomandi með það fyrir augum að formleg kynning tillögunnar hefjist í ágúst og að kjördagur verði fyrir lok árs 2023. Samstarfsnefndinni er falið að setja verkefninu nánari verkáætlun og tímaramma.
Tillagan er lögð fram í kjölfar óformlegra viðræðna fulltrúa sveitarfélaganna og samráðs við innviðaráðuneytið og Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Bæjarráð Vesturbyggðar tók málið fyrir á 956. fundi sínum þar sem lagt var til við bæjarstjórn að samþykkja að skipa sex fulltrúa í samstarfsnefnd, þ.e. þrír frá hvoru sveitarfélagi, sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. gr. sveitarstjórnarlaga.
Bæjarráð lagði til að bæjarstjórn skipi fulltrúa Vesturbyggðar til setu í samstarfsnefndinni.
Til máls tóku: Forseti, ÁS og ÞSÓ.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna og tilnefnir Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur, Jón Árnason og Guðrúnu Eggertsdóttur sem fulltrúa Vesturbyggðar í samstarfsnefndina.
Samþykkt samhljóða.
23. maí 2023 – Bæjarráð
Lagðar fram til kynningar fundargerðir samráðshóps vegna sameiningarviðræðna Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps.
13. júní 2023 – Bæjarráð
Lögð fram til kynningar fundargerð 6. og 7. fundar samstarfsnefndar vegna sameiningarviðræðna Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar, sem haldnir voru 24 maí og 31. maí 2023.
15. nóvember 2023 – Bæjarstjórn
Lögð er fram til kynningar fundargerð 13. fundar samstarfsnefndar vegna sameiningaviðræðna Tálknafjarðahrepps og Vesturbyggðar, sem haldinn var 30. október 2023. Í fundargerðinni er m.a. farið yfir niðurstöður íbúakosninga um sameiningu sveitarfélaganna. Kjörsókn í Vesturbyggð var 54,98% og sögðu 82,35% já við sameiningunni. Kjörsókn í Tálknafjarðarhrepp var 72,14% og sögðu 95,86% já við sameiningunni. Sameiningin var því samþykkt í báðum sveitarfélögum.
Á framangreindum fundi samstarfsnefndar beindi nefndin því til sveitarstjórna sveitarfélaganna að kjósa þrjá fulltrúa í undirbúningsstjórn en verkefni undirbúningsstjórnar er að undirbúa formlega sameiningu sveitarfélaganna, þ.á m. fyrirkomulag kosninga til sveitarstjórnar og gildistöku sameiningar. Til að tryggja samfellu í verkefninu leggur samstarfsnefndin til að sömu fulltrúar taki sæti í undirbúningsnefnd og voru í samstarfsnefnd.
Til máls tók: Varaforseti
Bæjarstjórn tilnefnir Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur, Jón Árnason og Guðrúnu Eggertsdóttur sem fulltrúa Vesturbyggðar í stjórn til undirbúnings nýs sveitarfélags
Samþykkt samhljóða.
28. nóvember 2023 – Bæjarráð
Lagður fram tölvupóstur frá Tálknafjarðarhrepp dags. 15. nóvember sl. þar sem upplýst er um skipan fulltrúa Tálknafjarðarhrepps í undirbúningsstjórn.
19. desember 2023 – Bæjarráð
Lagðar fyrir fundargerðir 1. og 2. fundar undirbúningsstjórnar um sameiningu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps.