Málsnúmer 2102027
9. febrúar 2021 – Bæjarráð
Rætt um opnunartíma í Byltu og uppsetningu innstimplunarkerfis, sem nú er í prófun. Með innstimplunarkerfinu verður aðgengi að þreksal hússins aukið verulega. Þá var rætt um rekstur tjaldstæðisins á Bíldudal og samspil þess við rekstur Byltu.
Einnig var rætt um mögulegar breytingar á opnunartíma Byltu í haust með tilkomu innstimplunarkerfisins.