Málsnúmer 2006007
13. október 2020 – Menningar- og ferðamálaráð
Menningar-og ferðamálafulltrúi fór yfir samantekt á fjölda gistinátta og gestakomum á tjaldsvæðum í Vesturbyggð frá maí-september 2020.
13. apríl 2021 – Menningar- og ferðamálaráð
Lagt fram til umfjöllunar framtíðaráform tjaldsvæðisins á Bíldudal.
Í fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2021-2024 í framkvæmdakafla kemur fram að framlag verður veitt fyrir nýtt færanlegt salernishús við tjaldsvæðið við Byltu á Bíldudal en einnig verður á árinu undirbúið að finna tjaldsvæðinu á Bíldudal annan stað og er m.a. horft til þess að nýta svæði í kringum Lönguhlíð 20.
11. maí 2021 – Menningar- og ferðamálaráð
Geir Gestsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnir stöðu á tjaldsvæðum Patreksfjarðar og Bíldudals. Rætt um framtíðarmöguleika, sturtuaðstöðu, öryggismál o.fl.
14. september 2021 – Menningar- og ferðamálaráð
Ráðið ræddi um liðið sumar varðandi tjaldsvæðin í Vesturbyggð en þörf er á uppbyggingu á aðstöðu hvað varðar tjaldsvæðið á Patreksfirði.
11. maí 2022 – Menningar- og ferðamálaráð
Farið var yfir framtíðarplön tjaldsvæðanna. Rætt var um að fá tilboð í gerð á skipulagi tjaldsvæðisins á Bíldudal og að hefja framkvæmdir á tjaldsvæðinu á Patreksfirði sem fyrst. Rætt um að flýta opnunartíma tjaldsvæðisins á Bíldudal til að samræma við opnunartíma tjaldsvæðisins á Patreksfirði.