Málsnúmer 2002243
11. mars 2020 – Menningar- og ferðamálaráð
Lagt fyrir mál um Rekstur tjaldsvæðis á Patreksfirði.
Vesturbyggð auglýsti eftir umsjónaraðila til að sjá um rekstur tjaldsvæðisins á Patreksfirði. Tvær umsóknir bárust.
Ráðið felur menningar- og ferðamálafulltrúa að afla frekari gagna vegna útfærslumunar á umsóknum og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
31. mars 2020 – Bæjarráð
Lagðar fram umsóknir um rekstur tjaldsvæðis á Patreksfirði sumarið 2020. Menningar- og ferðamálafulltrúi kom inn á fundinn og fór yfir málið.
Bæjarráð samþykkir að gera samning við Vestur Restaurant um rekstur tjaldsvæðis á Patreksfirði og felur menningar- og ferðamálafulltrúa að vinna drög að samningi.
12. maí 2020 – Menningar- og ferðamálaráð
Lagður fram til kynningar samningur Vesturbyggðar og Vestur restaurant um rekstur tjaldsvæðisins á Patreksfirði.