Málsnúmer 2002008
11. febrúar 2020 – Menningar- og ferðamálaráð
Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir vék af fundi undir lið 3 og 4. Formaður Menningar-og ferðamálaráðs tók við ritun fundarins.
Lögð fram styrkbeiðni Sköpunarhússins 72 ehf dags. 1.febrúar 2020 í tengslum við listavinnustofur fyrir börn í Húsinu Merkisteini, sumarið 2020.
Umbeðin styrkupphæð: 99.298 kr.
Menningar-og ferðamálaráð samþykkir styrkbeiðnina.