Málsnúmer 1910175
22. október 2019 – Bæjarráð
Bæjarráð Vesturbyggðar leggur fram eftirfarandi ályktanir á haustþingi Fjórðungssambands Vestfjarða sem haldið verður á Hólmavík 25. - 26. október 2019.
Það er verkefni einstakra sveitarfélaga á Vestfjörðum að kanna vilja sinna íbúa til sameiningar. Bæjarráð Vesturbyggðar leggst því gegn því að stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga leiði eða beiti sér í málefnum um sameiningu sveitarfélaga skv. þingsályktun um Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019?2033 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2019?2023. Þá telur bæjarráð Vesturbyggðar að ekki sé komið að þeim tímamótum, að unnt sé að horfa til heildstæðrar sameiningar allra sveitarfélaga á Vestfjörðum, þar sem enn eru samgöngur innan svæða sem og á milli svæða óboðlegar. Á árinu 2019 eru enn mörg svæði og byggðakjarnar innan Vestfjarða sem ekki er unnt að horfa á sem eitt atvinnusvæði allt árið um kring. Það er því nauðsynlegt að sveitarfélögin fái það svigrúm sem þingsályktunin gerir ráð fyrir til að ræða sín á milli um frekari sameiningar og samgönguúrbætur, áður en horft verði til sameiningar Vestfjarða í heild sinni.
Bæjarráð Vesturbyggðar leggur til við Fjórðungssamband Vestfirðinga að farið verði í að vinna uppfærða heildaráætlun um jarðgangnagerð á Vestfjörðum. Í áætluninni verði metnir helstu jarðgangnakostir á Vestfjörðum og þeim forgangsraðað með tilliti til atvinnusóknarsvæða, verðmætasköpunar, sameiningu sveitarfélaga, þjónustu og samfélagslegra áhrifa. Horft verði sérstaklega til bættra samgangna með jarðgöngum innan sameinaðra sveitarfélaga, svo sem á sunnaverðum Vestfjörðum, undir Hálfdán, Mikladal og Kleifaheiði. Slík jarðgangnaáætlun yrði mikilvægt gagn fyrir baráttu Vestfirðinga fyrir nútímasamgöngum og nauðsynlegt innlegg í jarðgangnaáætlun ríkisins sem nú er til endurskoðunar.
Bæjarráð Vesturbyggðar leggur til við Fjórðungssamband Vestfirðinga að skorað verði á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra, Vegagerðina, Skipulagsstofnun og aðra sem koma að undirbúningi bættra samgangna um Vestfjarðaveg (60) um Bíldudalsveg og Dynjandisheiði (63), að þeirri vinnu verði flýtt, þar sem opnun Dýrafjarðagangna verður að öllu óbreyttu í september 2020.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda ályktanirnar til Fjórðungssambandsins.