Málsnúmer 1906041
2. júlí 2019 – Bæjarráð
Lagt fyrir erindi frá Lás ehf. dags. 18. júní 2019 þar sem fram koma mótmæli við bréfi dags. 13. júní sl. frá Vesturbyggð þar sem vísað var til innsendra reikninga frá Lás ehf. vegna veglagningar.
Bæjarráð óskar eftir því að forsvarsmenn Lás ehf. komi á fund bæjarráðs.
Afgreiðslu máls frestað.
16. júlí 2019 – Bæjarráð
Mætt til viðræðna við bæjarráð forsvarsmenn Lás ehf. til að ræða reikninga vegna gatnagerðar við Járnhól á Bíldudal.
25. júlí 2019 – Bæjarráð
Lagt fram tilboð Lás ehf. dags. 16. júlí 2019 um afslátt af reikningum vegna gatnagerðar við Járnhól.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara á grundvelli umræðna á fundinum.
17. september 2019 – Bæjarráð
Lagt fram tilboð Lás ehf. dags. 23. ágúst 2019 um afslátt af reikningum vegna gatnagerðar við Járnhól.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara á grundvelli umræðna á fundinum.
6. janúar 2021 – Bæjarráð
Bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fóru yfir stöðu mála vegna reikninga fyrir byggingaleyfis- og gatnagerðagjöldum á lóðum við Járnhól í Bíldudal, sem úthlutað hefur verið til Lás ehf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
9. febrúar 2021 – Bæjarráð
Bæjarstjóri fór yfir samskipti við Lás ehf. vegna reikninga fyrir gatnagerð og drög að samkomulagi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið.