Málsnúmer 1808011
7. nóvember 2018 – Fasteignir Vesturbyggðar
Rætt um langtíma viðhaldsáætlun fasteigna í eigu Fasteigna Vesturbyggðar. Vísað til frekari umræðu á næsta fundi nefndarinnar.
13. desember 2018 – Fasteignir Vesturbyggðar
Þóra Sjöfn Kristinsdóttir mætti á fundinn og fór yfir helstu viðhaldsverkefni sem framundan eru. Lögð var fram viðhaldsáætlun 2019 - 2021 staðfest samhljóða með fyrirvara um fjármögnun.
Rætt var um mikilvægi þess að sett yrði fram ítarlegri viðhaldsáætlun til næstu fjögurra ára. Framkvæmdastjóra falið að afla upplýsinga frá leigjendum um fyrirliggjandi viðhaldsverkefni í eignum félagsins, sem lagaðar verða fyrir næsta fund stjórnar.