Málsnúmer 1707032
2. ágúst 2017 – Vestur-Botn
Lagður fram ársreikningur Vestur-Botns ehf fyrir árið 2016 og skýrsla stjórnar. Afkoma félagsins var jákvæð um 214 þús.kr. Rekstrartekjur voru 483 þús.kr. að frádregnum fjármagnstekjuskatti og rekstrargjöld 269 þús.kr. Heildareignir námu 33,5 millj.kr. og engar skuldir. Eigið fé nam því sömu fjárhæð eða 33,5 millj.kr.
Aðalfundur samþykkir samhljóða ársreikning Vestur-Botns ehf. fyrir árið 2016.
Stjórnarkjör.
Nýja stjórn Vestur-Botns ehf. skipa:
Aðalstjórn:
Sigurður Viggósson, formaður.
Guðný Sigurðardóttir.
Magnús Jónsson.
Til vara:
Friðbjörg Matthíasdóttir.
Arnheiður Jónsdóttir.