Málsnúmer 1612017
16. janúar 2017 – Skipulags og umhverfisráð
Lagt fram bréf frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með ósk um umsögn um útgáfu gistileyfis fyrir Svörtuloft ehf. að Aðalstræti 31, 450 Patreksfirði, kt.411015-1060, dags. 07.12.2016. Sótt er um leyfi fyrir gististað í flokki III, fyrir allt að 30 gesti.
Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu gistileyfis enda sé húsið í samræmi við samþykkta uppdrætti.
24. janúar 2017 – Bæjarráð
Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum dags. 7. desember sl. frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi að reka gistingu samkvæmt gistiflokki III í gistiheimilinu Ráðagerði Aðalstræti 31, Patreksfirði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu nýs rekstrarleyfis að reka gistingu samkvæmt gistiflokki III í gistiheimilinu Ráðagerði Aðalstræti 31, Patreksfirði. Jákvæð umsögn Vesturbyggðar er þó skilyrt þannig að rekstraraðili sýni fram á að hann hafi samið við Gámaþjónustu Vestfjarða ehf eða aðra sambærilega aðila um förgun á sorpi sem fellur til við starfsemi gisiheimilisins. Rekstraraðili sýni einnig fram á að nægjanlegur fjöldi bílastæða fylgi starfsemi gístiheimilisins Ráðagerði.