Málsnúmer 1412052
19. janúar 2015 – Skipulags og umhverfisráð
Erindi frá Aðalgeir Jónssyni f.h. Sagarinnar ehf. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir utanhússklæðningu og lagfæringu/endurnýjun glugga á Aðalstræti 88, Patreksfirði. Í erindinu er þess getið að færa eigi húsið í sem næst upphaflegt horf.
Byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna hjá umsækjenda svo hægt sé að taka erindið fyrir.