Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 23. september 2014 og hófst hann kl. 17:00
Fundargerð ritaði
- Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Almenn erindi
1. Kosning formanns og varaformanns
Hafþór Gylfi Jónsson kosinn formaður og Páll Ágúst Ágústsson kosinn varaformaður. Ákveðið að fundir hafnarstjórnar verði í 4. viku hvers mánaðar.
Málsnúmer 1409071
2. Fiskistofa endurvigtunarleyfi fyrir Fiskmarkað Pf.
Lagt fram bréf frá FIskistofu vegna endurvigtunarleyfi fyrir Fiskmarkað Patreksfjarðar. Hafnstjórn gerir ekki athugasemd við erindið.
Málsnúmer 1408044
4. Fjárhagsáætlun 2015
Rætt um verkefni fjárhagsáætlunar 2015. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 1408037 12
5. Niðurfelling gjalda vegna Sæbjargar BA
Lagt fram bréf frá Eggerti Björnssyni fh. Félags áhugamanna um Bátasafns Breiðafjarðar þar sem sótt er um áframhaldandi niðurfellingu hafnargjöldum Sæbjargar BA . Eigendur stefna að uppgerð bátsins. Hafnarstjórn hefur áður fellt niður hafnargjöld á bátnum vegna þessa verkefnis. Hafnarstjórn samþykkir erindið og kallar eftir tímasetningu á lúkningu endurbyggingar Sæbjargar BA.
Málsnúmer 1409070
6. Umgengnismál olíufélaga við hafnir Vesturbyggðar
Rætt um umgengnismál í kringum sjálfsafgreiðslustöðvar við flotbryggjur í Vesturbyggð.
Hafnarstjórn óskar eftir tímasettri áætlun frá olíufélögunum vegna úrbóta á olíuafgreiðslum á Bíldudal.
Forstöðumanni Tæknideildar falið að senda bréf til viðkomandi aðila.
Málsnúmer 1409072
Til kynningar
3. Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2014
Lagt fram til kynningar yfirlit frá Fiskistofu um sérstakt strandveiðigjald til Hafna í Vesturbyggðar. Samtals komu inn 2.740.450 kr til Hafna Vesturbyggðar.
Málsnúmer 1409059
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00
Valgeir Davíðsson, aldursforseti, setti fundinn og gerði það að tillögu sinni að Hafþór G. Jónson yrði kosinn formaður.