Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 16. maí 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir formaður
Almenn erindi
1. Skólamál á Bíldudal
Hugmynd að sameiningu grunn- og leikskóla á Bíldudal kom fyrst fram í vinnu við gerð Skólastefnu Vesturbyggðar. Haldinn var íbúafundur á Bíldudal 25. apríl síðastliðinn þar sem kostir og gallar mögulegrar sameiningar voru ræddir. Í kjölfarið skiluðu skólaráð Bíldudals, foreldrafélög Bíldudalsskóla og Tjarnarbrekku inn áliti. Álitin voru öll jákvæð í garð sameiningar. Fræðslu- og æskulýðsráð Vesturbyggðar leggur til við Bæjarstjórn að hafinn verði undirbúningur sameiningar Grunn- og leikskóla á Bíldudal og stefnt skuli að því að sameiningu verði lokið fyrir 1. ágúst nk.
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1704021 3
2. Ytra mat Grunnskóla Vesturbyggðar
Gústaf Gústafsson fór yfir framkvæmd ytra mats sem unnið var við Patreksskóla og Bíldudalsskóla í vor. Niðurstaða matsins mun liggja fyrir á næstu misserum.
Málsnúmer 1612010 3
3. Starfsmannamál í skólum Vesturbyggðar veturinn 2017-2018.
Til kynningar
4. Héraðssambandið Hrafnaflóki - fundargerð héraðsþings 2017.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:22