Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 17. janúar 2024 og hófst hann kl. 17:00
Nefndarmenn
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) varamaður
- Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) aðalmaður
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) aðalmaður
- Tryggvi Baldur Bjarnason (TBB) varamaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
Málsnúmer 2209029 16
2. Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar 2024 - 2027.
Lagður fyrir listi yfir útboðsverk hjá Vegagerðinni uppfærður 02.01.2024 þar sem m.a. kemur fram að vetrarþjónusta á vegum á Vestfjörðum 2024-2027 verður boðin út á árinu 2024
Til máls tók: Forseti.
Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps tók málið fyrir á 627. fundi sveitarstjórnar þar sem eftirfarandi var bókað:
"Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lýsir yfir áhyggjum sínum af mögulega lakari vetrarþjónustu vegna fyrirséðra breytinga í fyrirhuguðu útboði Vegagerðarinnar á vetrarþjónustu á leiðinni Dynjandi-Klettsháls. Ætlun Vegagerðarinnar er að nota sömu tæki á leiðinni frá Dynjanda að Klettshálsi til að opna leiðina og halda henni opinni þann tíma sem vegurinn er þjónustaður. Brýnt er að hafa í huga hversu erfiður fjallvegur Dynjandisheiðin getur verið á snjóþungum vetri og því óttast sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps að slíkt ástand geti komið niður á vetrarþjónustu á leiðinni Flókalundur-Klettsháls ef gengur erfiðlega að opna Dynjandisheiðina. Það má ekki gerast að fyrirkomulag þjónustu valdi því að leiðin að Klettshálsi opni síðar en er í núverandi fyrirkomulagi.
Sveitarstjórnir Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar hafa margítrekað kröfur íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum um að bæta og auka vetrarþjónustu enn frekar. Mikið af þungaflutningum til og frá svæðinu fer um Klettsháls auk umferðar almennra íbúa og því er algjört lykilatriði að tryggja að vetrarþjónusta á leiðinni að Klettshálsi sé ávallt eins og best verður á kosið. Öflug vetrarþjónusta á þessum leiðum er besta leiðin til að tryggja umferðaröryggi allra þeirra sem um vegina fara.
Því leggur sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps mikla áherslu á að Vegagerðin tryggi að vetrarþjónustu verði ávallt sinnt sem best má verða og að vandað sé til verka við undirbúning útboðs ef breyta á leiðum í vetrarþjónustu".
Bæjarstjórn Vesturbyggðar tekur heilsuhugar undir bókun sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps.
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2401043 3
3. Reglur um afslátt af fasteignaskatti og styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2024
Lagðar fram reglur um afslátt af fasteignaskatti og styrki til greiðslu fasteignaskatts 2024.
Efnislega eru ekki gerðar breytingar frá árinu áður, en uppfærð í samræmi við fjárhagsáætlun 2024 og afsláttur hækkaður í samræmi við aðrar breytingar á gjaldskrám.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir samhljóða þær reglur sem lagðar eru fram hér um afslátt af fasteignaskatti og styrki til greiðslu fasteignaskatts 2024.
Málsnúmer 2401056
4. Hafnarbraut 16. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.
Erindi frá Sólveigu Dröfn Símonardóttur dags. 22. desember 2023. Í erindinu er óskað eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi undir húseignina að Hafnarbraut 16, Bíldudal.
Byggingarfulltrúi hefur unnið tillögu að lóðinni í samræmi við eldri afmörkun lóðarinnar að teknu tilliti til eldri lóðarleigusamnings og fylgir hún hér með, lóðin er um 760m2.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn á 114. fundi sínum að endurnýjun lóðarleigusamningsins verði samþykkt í samræmi við tillögu byggingarfulltrúa.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að endurnýjun lóðarleigusamningsins.
Málsnúmer 2312031 2
5. Urðargata 21a og 21b, sameining byggingarreita og byggingaráform.
Lögð fram umsókn um byggingaráform fyrir einbýlishús við Urðargötu 21a og 21b, dagsett 8. janúar 2024. Í umsókninni er sótt um að fá að reisa 180 m2 einbýlishús og nýttur verður vatnstankur sem stendur á lóðinni fyrir kjallara. Með umsókninni fylgja teikningar sem og tillaga að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið þar sem lóðir Urðagötu 21a og 21b eru sameinaðar í Urðargötu 21.
Skipulags- og umhverfisráð lagði til við bæjarstjórn á 114. fundi sínum að áformin fái málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Urðargötu 19, 20, 22, 23 og 26.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að tillagan fái málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verði fyrir lóðarhöfum Urðargötu 19, 20, 22, 23 og 26.
Málsnúmer 2401013 5
6. Vesturbotn - deiliskipulag
Tekið fyrir afgreiðslubréf Skipulagsstofnunar dagsett 15. nóvember 2023 þar sem gerðar eru athugasemdir við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagins í B-deild Stjórnartíðinda. Fyrir liggja endurbætt skipulagsgögn þar sem komið hefur verið til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunar. Fyrir liggur einnig umsögn frá slökkviliði Vesturbyggðar.
Gerðar voru eftirfarandi breytingar á skipulagsgögnum:
Bætt var við táknum fyrir brunahana inn á skipulagsuppdrátt og upplýsingum um brunavarnir bætt við í greinargerð.
Uppdráttur stækkaður til þess að sýna afmörkun vatnsbóls á uppdrætti.
Fjarlægð frá vatni að byggingarreit sem næst er vatni bætt við á uppdrátt.
Bætt við sniðmyndum á uppdrátt.
Skipulagsmörk gerð greinilegri.
Ekki er gert ráð fyrir hreinsivirki en í greinargerð kemur fram að gert sé ráð fyrir rotþróm við hvert hús. Stækkun golfvallar er ekki hluti af deiliskipulaginu heldur er verið að sýna eingöngu mögulegt stækkunarsvæði og er það afmarkað sérstaklega og fellur því ekki undir lið 12.07 mgr. 1. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Skipulags- og umhverfisráð lagði til við bæjarstjórn á 114. fundi sínum að breytingarnar sem gerðar hafa verið á tillögunni verði samþykktar og skipulagsfulltrúa falin fullnaðarafgreiðsla á deilskipulaginu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða breytingarnar sem gerðar hafa verið á tillögunni og að skipulagsfulltrúa falin fullnaðarafgreiðsla á deilskipulaginu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2306067 6
7. Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir
Forseti bar upp tillögur um breytingar á nefndarskipan í ungmennaráði Vesturbyggðar samkvæmt tillögum Tómstundafulltrúa.
Aðalmenn
Íris Emma Sigurpálsdóttir (Patreksskóli)
Hildur Ása Gísladóttir (Bíldudalsskóli)
Bryndís Hekla Heimisdóttir (Fjölbrautaskóli Snæfellinga)
Guðrún Ýr Grétarsdóttir (Patreksfirði)
Jökull Davíðsson (Patreksfirði)
Varamenn
Oliwia Sienkiewicz(Patreksskóli)
Guðmundur Sævar Vignisson (Patreksskóli)
Ísabella Guðrún Arnarsdóttir (Bíldudalsskóli)
Elmar Gauti Gunnarsson (Patreksfirði)
Herdís Freyja Grétarsdóttir (Patreksskóli)
Til máls tóku: Forseti og bæjarfulltrúi.
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2201017 13
Fundargerðir til kynningar
8. Bæjarráð - 975
Lögð fyrir fundargerð 975. fundar bæjarráðs Vesturbyggðar. Fundurinn var haldinn 9. janúar 2024 og var í 9 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 8.1. #2311068 – Til samráðs -Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg.
- 8.2. #2312015 – Til samráðs -Frumvarp til laga um lagareldi
- 8.3. #2401009 – Umræða um þjóðarsátt í tengslum við kjaraviðræður
- 8.4. #2301003 – Styrkumsóknir til menningar- og ferðamálaráðs 2023
- 8.5. #2302031 – Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis 2023
- 8.6. #2312036 – Til samráðs - Endurmat á virkjunarkostum úr 3. áfanga rammaáætlunar - tillögur verkefnastjórnar
- 8.7. #2312037 – Til samráðs - Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum um opinberar stofnanir (framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits).
- 8.8. #2401004 – Mál nr. 27 um frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101-2010 (málsmeðferð og skilyrði),
- 8.9. #2301036 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2023
Málsnúmer 2401002F
9. Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 69
Lögð fyrir fundargerð 69. fundar samráðsnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Fundurinn var haldinn 11. janúar 2024 og var í 7 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 9.1. #2310036 – Minjasafn Egils Ólafssonar, fjárhagsáætlun 2024
- 9.2. #2401035 – Úttekt safnaráðs á Minjasafni Egils Ólafssonar 2023
- 9.3. #2401039 – Erindi landeiganda að Hnjóti, Örlygshöfn
- 9.4. #2401040 – Beiðni um námsleyfi
- 9.5. #2401041 – Menntun á framhaldsskólastigi á sunnanverðum Vestfjörðum
- 9.6. #2401042 – Verkefni samráðsnefndar í sameinuðu sveitarfélagi
- 9.7. #2401043 – Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar 2024 - 2027.
Málsnúmer 2401007F
10. Skipulags og umhverfisráð - 114
Lögð fyrir fundargerð 114. fundar skipulags og umhverfisráðs. Fundurinn var haldinn 11. janúar 2024 og var í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 10.1. #2312011 – Krossholt iðnaðarhús. Ósk um endurnýjun á lóðarleigusamning.
- 10.2. #2312031 – Hafnarbraut 16. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.
- 10.3. #2312038 – Umsagnarbeiðni - Notkun ásætuvarna Arctic Sea Farm í Arnarfirði
- 10.4. #2401013 – Urðargata 21a og 21b, sameining byggingarreita og byggingaráform.
- 10.5. #2306067 – Vesturbotn - deiliskipulag
- 10.6. #2312032 – Krossholt Móra. Umsókn um stöðuleyfi.
Málsnúmer 2401004F
11. Hafna- og atvinnumálaráð - 56
Lögð fyrir fundargerð 56. fundar hafna- og atvinnumálaráðs. Fundurinn var haldinn 8. janúar 2024 og var í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 11.1. #2311068 – Til samráðs -Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg.
- 11.2. #2312015 – Til samráðs -Frumvarp til laga um lagareldi
- 11.3. #2312019 – Fundargerð 77. stjórnarfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og hvatning til sveitarfélaga varðandi frumvörp í samráðsgátt
- 11.4. #2312020 – Fundargerð 459. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands
Málsnúmer 2401001F
12. Fræðslu- og æskulýðsráð - 90
Lögð fyrir fundargerð 90. fundar fræðslu- og æskulýðsráðs. Fundurinn var haldinn 8. janúar 2024 og var í 7 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 12.1. #2201004 – Ungmennaráð Vesturbyggðar
- 12.2. #2303018 – Starfsáætlun Fræðslu- og æskulýðsráðs
- 12.3. #2204049 – Menntastefna Vestfjarða
- 12.4. #2309034 – Innra mat í leikskólum
- 12.5. #2309071 – Sveitafélagaskýrsla - Íslenska æskulýðsrannsóknin
- 12.6. #2401007 – Starfsáætlun Tónlistaskóla 2023 - 2024
- 12.7. #2401011 – Araklettur starfsáætlun 2023-2024
Málsnúmer 2311006F
13. Undirbúningsstjórn vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 3
Lögð fyrir fundargerð 3. fundar undirbúningsstjórnar vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Fundurinn var haldinn 10. janúar 2024 og var í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 13.1. #2401024 – Tilboð KPMG í þjónustu vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps
- 13.2. #2401025 – Verkefnatillaga og tímaáætlun vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps
- 13.3. #2401026 – Ákvörðun um fastan fundartíma undirbúningsstjórnar
- 13.4. #2401027 – Kennitala nýs sveitarfélags
Málsnúmer 2401006F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:28
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 391. fundar
miðvikudaginn 17. janúar 2024 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Jón Árnason forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Forseti bar undir fundinn að tekin verði inn afbrigði á dagskrá, liður 3 málsnr. 2312011 - Krossholt iðnaðarhús. Ósk um endurnýjun á lóðarleigusamning, fellur út og inná dagskránna koma tveir nýjir dagskrárliðir. Fyrra málið verður dagskrárliður 3. málsnr. 2401056 - Reglur um afslátt af fasteignaskatti og styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2024. Seinna málið verður dagskrárliður 7. Málsnr. 2201017 - Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir. Dagskrárliðir 7 - 12 færast niður um einn lið og verða númer 8 - 13.
Samþykkt samhljóða.