Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 15. maí 2023 og hófst hann kl. 17:00
Nefndarmenn
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) aðalmaður
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku:Forseti og bæjarstjóri.
Málsnúmer 2209029 16
2. Starfshópur um samstarfs í velferðarþjónustu meðal sveitarfélaga á Vestfjörðum
Lagðir eru fram tölvupóstar Þorgeirs Pálssonar, sveitarstjóra Strandabyggðar, dagsettir 3. Og 9. Maí 2023, þar sem óskað er eftir að bæjar- og sveitarstjórnir þeirra sveitarfélaga sem standa að samningi um Velferðarþjónustu Vestfirðinga, taki beiðni Strandabyggðar um aðild, formlega fyrir á næsta bæjar- eða sveitarstjórnarfundi.
Samningur þeirra sveitarfélaga sem ákváðu að standa saman að Velferðarþjónustu Vestfirðinga hefur verið í yfirlestri hjá ráðuneytum undanfarnar vikur. Öll sveitarfélög á Vestfjörðum ákváðu að koma að stofnun Velferðarþjónustu Vestfirðinga, nema Strandabyggð sem vildi kanna aðra möguleika. Unnið er að því að gerðar verði breytingar á samningnum þar sem bætt verði inn heimild til að bæta við aðildarsveitarfélagi að samningnum með viðauka við samninginn ef bæjar- eða sveitarstjórnir allra sveitarfélaga samþykkja.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir fyrir sitt leyti að gerður verði viðauki við samning um Velferðarþjónustu Vestfirðinga, í samræmi við framangreint, þar sem Strandabyggð bætist við sem aðili að samningnum enda gangi Strandabyggð að skilmálum samningsins.
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 2209052 11
3. Ársreikningur 2022
Lagður fram til seinni umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2022.
Rekstrartekjur A og B hluta bæjarsjóðs voru 2.142 millj. kr., þar af voru 1.645 millj. kr. vegna A hluta og jukust tekjur A hluta um 9,5% á milli ára. Samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta bæjarsjóðs var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 88 millj. kr. en í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 55 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða A hluta var neikvæð um 92,8 millj. kr. en í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir neikvæðri afkomu upp á 71 millj. kr.
Fjárfest var á árinu fyrir 302 millj. kr. í fastafjármunum og tekin voru ný lán á árinu 2022 uppá 100 millj. kr. Afborganir langtímalána námu 177 millj. kr.
Heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi A og B hluta námu 3.062 millj. kr. í árslok 2022. Skuldir A hluta námu í árslok 2022 2.107 millj. kr., heildarskuldbindingar (A og B hluta) námu um 2.462 millj. kr.
Skuldaviðmið var 82% í árslok 2022 og hafði lækkað um 4% frá árinu 2021.
Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi var 600 millj. kr. í árslok 2022 og var eiginfjárhlutfall 19,6%.
Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi A og B hluta var 348 millj. kr. Nam handbært fé í árslok 135 millj. kr.
Til máls tóku:
Ársreikningur Veturbyggðar fyrir árið 2022 samþykktur samhljóða.
Málsnúmer 2301013 3
4. Strandgata 14A,C,D. umsókn um lóð og sameiningu.
Erindi frá Arnarlax hf. dags. 1. mars 2023. Í erindinu er sótt um lóðirnar að Strandgötu 14A, 14C og 14D á Bíldudal. Hafna- og atvinnumálaráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að leigja út lóðirnar að Strandgötu 14A, 14C og 14D á Bíldudal til Arnarlax. Þá samþykkir ráðið að farið verði í sameiningu lóðanna með tilheyrandi breytingu á deiliskipulagi.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir úthlutun lóðanna.
Málsnúmer 2303007 4
5. Vegagerðin - Umsókn um stofnun vegsvæðis úr landi Trostansfjarðar.
Erindi frá Direkta lögfræðiþjónustu dags. 04.05.2023 f.h. landeigenda í Trostansfirði, Arnarfirði, L140470. Í erindinu er sótt um stofnun 108.608 m2 vegsvæðis úr landi Trostansfjarðar.
Erindinu fylgir uppdráttur er sýnir vegsvæðið.
Skipulags- og umhverfisráð tók erindið fyrir á 106. fundi sínum þar sem það leggur til við bæjarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir stofnun lóðarinnar.
Málsnúmer 2305014 2
6. Kvígindisdalur - Umsókn um stofnun lóðar.
Erindi frá Val Thoroddsen. Í erindinu er sótt um stofnun 400m2 lóðar úr landi Kvígindisdals, Patreksfirði, L139897.
Erindinu fylgir lóðarblað er sýnir afmörkun lóðarinnar.
Skipulags- og umhverfisráð tók erindið fyrir á 106. fundi sínum þar sem það leggur til við bæjarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir stofnun lóðarinnar.
Málsnúmer 2305003 2
7. Dufansdalur Fremri - umsókn um stofnun lóðar
Erindi frá Guðrúnu I. Halldórsdóttur. Í erindinu er sótt um stofnun lóðar úr landi Dufansdals Fremri, L231733. Stærð lóðar er 6564 m2 og ber heitið Dufansdalur lóð 10.
Erindinu fylgir lóðablað. Lóðin stendur við deiliskipulagða frístundabyggð í Dufansdal.
Skipulags- og umhverfisráð tók erindið fyrir á 106. fundi sínum þar sem það leggur til við bæjarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggð samþykkir stofnun lóðarinnar.
Málsnúmer 2305022 2
8. Deiliskipulag Krossholt - ósk um breytingu.
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu breyting á deiliskipulagi Langholt-Krossholt. Breytingin var grenndarkynnt frá 27. febrúar til 3. apríl 2023. Fyrir liggur umsögn Fiskistofu sem og tvær athugasemdir er bárust á kynningartímanum.
Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 106. fundi sínum þar sem það leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að svara þeim sem gerðu athugasemdir og að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir breytinguna og að hún fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá felur bæjarstjórn skipulagsfulltrúa að svara þeim sem gerðu athugasemdir.
Málsnúmer 2212033 3
Fundargerðir til kynningar
9. Menningar- og ferðamálaráð - 28
Lögð fram til kynningar fundargerð 28. fundar menningar- og ferðamálaráðs, fundurinn var haldinn 2. maí 2023. Fundargerð er í 4 liðum.
Til máls tóku: Forseti, GE, ÁS og bæjarstjóri.
- 9.1. #2301003 – Styrkumsóknir til menningar- og ferðamálaráðs 2023
- 9.2. #2304040 – 17. júní 2023
- 9.3. #2208040 – Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
- 9.4. #2303046 – Umsókn í Barnamenningarsjóð fyrir Skrímslastopp í Arnarfirði
Málsnúmer 2304007F
Fundargerð
10.
Bæjarráð - 961
Lögð fram til kynningar fundargerð 961. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 9. maí 2023. Fundargerð er í 12 liðum.
Til máls tók: Forseti.
- 10.1. #2304037 – Kjör í fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands
- 10.2. #2305002 – Fundargerð 72. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.
- 10.3. #2305001 – Mál nr. 978 um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023-2026. Ósk um umsögn.
- 10.4. #2304056 – Mál nr. 980 um frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða ( veiðistjórn grásleppu). Ósk um umsögn
- 10.5. #2302088 – Rekstur og fjárhagsstaða 2023
- 10.6. #2201050 – Leikskólar í Vesturbyggð - húsnæðismál
- 10.7. #2304045 – Mögulegar lagabreytingar vegna óleyfisbúsetu.
- 10.8. #2304049 – Mál nr. 922 um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna ( samþætting þjónustu o.fl.). Ósk um umsögn.
- 10.9. #2304050 – Mál nr. 956 um frumvarp til laga um Mennta- og skólaþjónustustofu. Ósk um umsögn.
- 10.10. #2304052 – Mál nr. 945. um frumvarp til laga um kosningalög o.fl. (ýmsar breytingar). ósk um umsögn.
- 10.11. #2304046 – Orlof húsmæðra 2023
- 10.12. #2304051 – Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi fyrirhugaða atkvæðagreiðslu BSRB um verkfallsaðgerðir
Málsnúmer 2304006F
11.
Hafna- og atvinnumálaráð - 49
Lögð fram til kynningar fundargerð 49. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 9. maí 2023. Fundargerð er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti.
- 11.1. #2303007 – Strandgata 14A,C,D. umsókn um lóð og sameiningu.
- 11.2. #2305012 – Olíudreifing Patrekshöfn - umsókn um stækkun lóðar.
- 11.3. #2304027 – Deiliskipulagsbreyting - deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði
- 11.4. #2301041 – Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands 2023
Málsnúmer 2305001F
12.
Fræðslu- og æskulýðsráð - 87
Lögð fram til kynningar fundargerð 87. fundar fræðslu- og æskulýðsráðs, fundurinn var haldinn 8. maí 2023. Fundargerð er í 5 liðum.
Fráfarandi skólastjóra Bíldudalsskóla þakkað samstarfið.
Til máls tók: Forseti.
- 12.1. #2204021 – Íþrótta og tómstundafulltrúi
- 12.2. #2302092 – Stóra upplestrarkeppnin 2023
- 12.3. #2303013 – Ráðstöfun fjármuna í grunnskóla, áframhaldandi vinna
- 12.4. #2303038 – Bíldudalsskóli og Tjarnarbrekka Hönnun og undirbúningur
Málsnúmer 2303010F
13.
Skipulags og umhverfisráð - 106
Lögð fram til kynningar fundargerð 106. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 11. maí 2023. Fundargerð er í 11 liðum.
Til máls tók: Forseti.
- 13.1. #2305014 – Vegagerðin - Umsókn um stofnun vegsvæðis úr landi Trostansfjarðar.
- 13.2. #2212033 – Deiliskipulag Krossholt - ósk um breytingu.
- 13.3. #2305022 – Dufansdalur Fremri - umsókn um stofnun lóðar
- 13.4. #2305004 – Grænhóll. Ósk um samþykki fyrir niðurrifum.
- 13.5. #2305003 – Kvígindisdalur - Umsókn um stofnun lóðar.
- 13.6. #2305018 – Langholt 3. Umsókn um stöðuleyfi.
- 13.7. #2304025 – Erindi til Skipulags- og umhverfisráðs varðandi sæstrengi og ósk um gögn.
- 13.8. #2304027 – Deiliskipulagsbreyting - deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði
- 13.9. #2304054 – Göngustígur í Selárdal
- 13.10. #2305005 – Strandgata 21 - umsókn um samþykki byggingaráforma.
- 13.11. #2305006 – Aðalstræti 19, Patreksfirði - fyrirspurn
Málsnúmer 2304003F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:23
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 383. fundar mánudaginn 15. maí 2023 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Jón Árnason forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.