Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 16. júní 2021 og hófst hann kl. 17:00
Nefndarmenn
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
- Jörundur Garðarsson (JG) varamaður
- Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
- María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Arnheiður Jónsdóttir (AJ) sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Arnheiður Jónsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Fjárhagsáætlun 2021 - viðaukar
Lagður fyrir viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2021 ásamt minnisblaði hafnarstjóra vegna vinnslu á grjóti fyrir fyrirhugaða grjótvörn við Brjánslækjarhöfn. Heildarkostnaður vegna vinnslu og flutnings á efninu eru 14.500.000 af því er hlutur Vesturbyggðar 5.800.000. Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé í hafnarsjóði. Viðaukinn var tekin fyrir á 922. fundi bæjarráðs 8. Júní sl.
Viðaukinn hefur þau áhrif að afskriftir í B hluta aukast um 116 þúsund. Rekstrarniðurstaða A hluta breytist ekki en rekstrarniðurstaða A og B hluta fer úr því að vera neikvæð uppá 34,5 m.kr í það að vera neikvæð uppá 34,6 m.kr. Handbært fé A hluta breytist ekki en handbært fé í A og B hluta lækkar um 5,8 m.kr.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.
Málsnúmer 2103010 15
2. Fjárhagsáætlun 2022-2025
Lagðar fram reglur um fjárhagsáætlunarferlið 2021 vegna áætlunar 2022 - 2025.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn staðfestir reglurnar.
Málsnúmer 2106009 13
3. Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir
Vegna sviplegs fráfalls Sveins Eyjólfs Tryggvasonar frá Lambavatni þarf Vesturbyggð að endurskipa í fjallskilanefnd. Áður en það er gert vill forseti biðja fundargesti og bæjarfulltrúa að rísa úr sæti og minnast hans með einnar mínútu þögn.
Forseti bar upp tillögu um breytingu á nefndarskipan, þar sem Ásgeir Sveinsson tekur sæti sem aðalmaður í fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar í stað Sveins Eyjólfs Tryggvasonar.
Til máls tók: Forseti
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2005004 7
4. Slökkvilið og sjúkraflutningar
Lögð fram bókun samráðsnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðahrepps af 60. fundi nefndarinnar, þar sem fjallað var um skýrslu Ráðrík um mögulegan samrekstur slökkviliða og sjúkraflutninga á sunnanverðum Vestfjörðum. Samráðsnefnd lagði til við bæjarstjórn að, að ekki verði farið í sameiningu slökkviliðs og sjúkraflutninga að svo stöddu.
Til máls tók: Forseti.
Staðfest samhljóða tillögu samráðsnefndar að ekki verði farið í sameiningu slökkviliðs og sjúkraflutninga á sunnanverðum Vestfjörðum að svo stöddu.
Málsnúmer 2105057 2
5. Þjóðgarður á sunnanverðum Vestfjörðum
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu um þjóðgarð á sunnanverðum Vestfjörðum. Bæjarráð samþykkti drögin fyrir sitt leyti á 922. fundi 8. júní sl. og fólu bæjarstjóra að vinna að málinu áfram og drög yfirlýsingar yrðu lögð fyrir bæjarstjórn til staðfestingar. Drög viljayfirlýsingarinnar tóku breytingum eftir fund bæjarráðs og er í fyrirliggjandi drögum m.a. mælt fyrir um að brýnt sé að styrkja afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum og horft verði til leiða sem samrýmast umhverfissjónarmiðum.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn ítrekar fyrri bókun sína á 357. fundi 17. febrúar 2021, þess efnis að áform um þjóðgarð komi ekki veg fyrir nauðsynlega innviðauppbyggingu innan marka þjóðgarðsins.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar bendir á að stofnun þjóðgarðs mun ekki hafa í för með sér breytingar á mögulegum virkjunarkostum innan marka friðlandsins í Vatnsfirði sem friðlýst var árið 1975. Með setningu laga um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 var fyrir það skotið að virkjunarkostir sem hafa uppsett rafafl 10MW eða meira yrðu heimilir innan marka friðlandsins í Vatnsfirði, nema til komi endurskoðun rammaáætlunar. Mikilvægt er því að mati bæjarstjórnar Vesturbyggðar að áherslur á aukið raforkuöryggi og orkukosti á Vestfjörðum verði aðskilin frá undirbúningi um stofnun þjóðgarðsins, enda þótt ekki verði af stofnun þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum þá koma friðlýsingarskilmálar friðlandsins í Vatnsfirði og ákvæði laga um verndar- og nýtingaráætlun í veg fyrir stærri virkjunarframkvæmdir innan núverandi marka friðlandsins í Vatnsfirði. Bæjarstjórn Vesturbyggðar telur hins vegar mikilvægt að áfram verði unnið að því að tryggja raforkuöryggi á Vestfjörðum og að leitað verði leiða til að tryggja að næg raforka verði til staðar á Vestfjörðum til að m.a. mæta aukinni atvinnuuppbyggingu og til að tryggja að orkuskipti.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar leggur til að bætt verði í viljayfirlýsinguna tilvísun í forgreiningu Vestfjarðastofu á innviðaþörf í þjóðgarði á sunnanverðum Vestfjörðum. Með þeim breytingum staðfestir bæjarstjórn samhljóða viljayfirlýsinguna og felur bæjarstjóra að undirrita hana fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2001009 7
6. Strandgata 1, Bíldudal. Umsókn um byggingaráform og stækkun lóðar.
Forseti vék af fundi og fól varaforseta stjórn fundarins.
Lagt fram erindi frá Arnarlax dags. 28. maí 2021. Í erindinu er óskað eftir stækkun lóðar Strandgötu 1 á Bíldudal sem og samþykki fyrir byggingaráformum vegna stækkunar á verkstæði. Viðbyggingin er um 57 m2 og er lóðarstækkun í samræmi við það. Erindinu fylgja aðaluppdrættir unnir af M11 teiknistofu dags. 28. maí 2021. Skipulags- og umhverfisráð lagði til á 85. fundí sínum að lóðarstækkunin yrði samþykkt og samþykkti byggingaráformin með fyrirvara um grenndarkynningu.
Til máls tók: Varaforseti.
Bæjarstjórn samþykkir stækkun lóðar Strandgötu 1 á Bíldudal og byggingaáformin með fyrirvara um grenndarkynningu.
Samþykkt samhljóða.
Forseti kom aftur inn á fundinn og varaforseti afhenti fundarstjórn aftur til forseta.
Málsnúmer 2106026 2
7. Sumarleyfi bæjarstjórnar 2021
Forseti lagði fram tillögu um sumarleyfi bæjarstjórnar 2021. Með vísan til 3. mgr. 8. gr. og 4. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn Vesturbyggðar nr. 371/2014, er lagt til að sumarfrí bæjarstjórnar verði frá 17. júní til og með 17. ágúst nk. og á þeim tíma hafi bæjarráð Vestubyggðar heimild til fullnaðarafgreiðslu skv. 32. gr. samþykktar um stjórn Vesturbygðar. Næsti fundar bæjarstjórnar er 18. ágúst nk.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.
Málsnúmer 2106010
8. Óskað eftir landskiptum á landi Seftjarnar-Hrófsnes, landnr. L2291244, F2507131
Lagt fram erindi frá Ríkiseignum, dags. 19. maí 2021. Í erindinu er óskað eftir samþykki fyrir landskiptum á landi Seftjarnar-Hrófsnes, landnr. 229124 úr ríkisjörðinni Seftjörn landnr. 139849. Erindinu fylgir uppdráttur er sýnir legu landsins. Skipulags- og umhverfisráð tók erindið fyrir á 85. fundi ráðsins 10. júní sl. og gerir ekki athugasemd við landskiptin og lagði til við bæjarstjórn að þau verði samþykkt.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir landskipti á landi Seftjarnar-Hrófsnes úr ríkisjörðinni Seftjörn.
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2105069 2
Fundargerð
9.
Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 60
Lögð er fram til kynningar fundargerð 60. fundar samráðsnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps, fundurinn var haldinn 27. maí 2021. Fundargerðin er í 7 liðum.
- 9.1. #2105057 – Slökkvilið og sjúkraflutningar
- 9.2. #2105056 – Brunavarnaráætlun
- 9.3. #2105058 – Vatneyrarbúð, Patreksfirði
- 9.4. #2105059 – Starfsmannamál Minjasafns Egils Ólafssonar
- 9.5. #2105047 – Boðun á 66. Fjórðungsþings Vestfirðinga 2. júní 2021
- 9.6. #2005032 – Gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum
- 9.7. #2105060 – Starf íþrótta- og tómstundafulltrúa
Málsnúmer 2105008F
10.
Bæjarráð - 922
Lögð er fram til kynningar fundargerð 922. fundar bæjarráðs Vesturbyggðar, fundurinn var haldinn 8. júní 2021. Fundargerðin er í 17 liðum.
- 10.1. #2102030 – Verbúð, Patrekshöfn - sala á eign.
- 10.2. #2103058 – Skólaakstur - skólaárið 2021 og 2022
- 10.3. #2106001 – Ályktun stjórnar Félags atvinnurekenda vegna fasteignamats 2022
- 10.4. #2105072 – Fundargerð nr. 898 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
- 10.5. #2105039 – Mál nr. 720 um velferðarstefnu fyrir aldraða. Ósk um umsögn.
- 10.6. #2106003 – Fundargerð XXXVI. landsþings sambandsins
- 10.7. #2105048 – Ársskýrsla og ársreikningur 2020
- 10.8. #2105070 – Umburðarbréf vegna breytinga á jarðalögum
- 10.9. #2106008 – Vélin úr Kára BA 265 - gjafabréf
- 10.10. #2001009 – Þjóðgarður á sunnanverðum Vestfjörðum
- 10.11. #2106009 – Fjárhagsáætlun 2022-2025
- 10.12. #2103010 – Fjárhagsáætlun 2021 - viðaukar
- 10.13. #2106005 – Umsagnarbeiðni gistileyfi - Búbíl ehf. Bíldudal
- 10.14. #2105067 – Látrabjarg - beiðni um umsögn
- 10.15. #2104064 – Beiðni um tilnefningar í Breiðafjarðarnefnd
- 10.16. #2105052 – Áform Arnarlax og Arctic Fish um byggingu sláturhúss
Málsnúmer 2106001F
11.
Skipulags og umhverfisráð - 85
Lögð er fram til kynningar fundargerð 85. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 10. júní 2021. Fundargerðin er í 4 liðum.
- 11.1. #2105069 – Óskað eftir landskiptum á landi Seftjarnar-Hrófsnes, landnr. L2291244, F2507131
- 11.2. #2106019 – Aðalstræti 69, umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings.
- 11.3. #2106026 – Strandgata 1, Bíldudal. Umsókn um byggingaráform og stækkun lóðar.
- 11.4. #2105070 – Umburðarbréf vegna breytinga á jarðalögum
Málsnúmer 2106003F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:38
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 361. fundar miðvikudaginn 16. júní 2021 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Iða Marsibil Jónsdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Jón Árnason boðaði forföll í hans stað situr fundinn Jörundur Garðarsson.
Forseti bar undir fundinn að tekið verði fyrir afbrigði á dagskrá, liður 7 málsnr. 2106019 - Aðalstræti 69, umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings verði tekið út af dagskrá í ljósi þess að skipulags- og umhverfisráð frestaði málinu að hluta til á 85. fundi sínum sem haldinn var 10. júní sl. Dagskrárliðir 8 - 13 færast upp um einn lið og verða númer 7 - 12.
Samþykkt samhljóða.