Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 20. janúar 2021 og hófst hann kl. 17:00
Nefndarmenn
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) varamaður
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
- María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Friðlýsing á Látrabjargi
Lagt fram erindi umhverfis- og auðlindaráðuneytisins dags. 17. desember 2020, þar sem kemur fram að ráðuneytið í samvinnu við Bjargtanga, félag land- og sumarhúsaeigenda að Hvallátrum við Látrabjarg hafi undanfarin misseri unnið að friðlýsingu Látrabjargs. Í erindi ráðuneytisins kemur fram að eins og þekkt er þá er svæðið á náttúruverndaráætlun þar sem um eitt stærsta fuglabjarg Evrópu er að ræða, og flokkast svæðið sem alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði. Svæðið býr yfir mikilli náttúrufegurð og er fjölsóttur ferðamannastaður. Með erindinu eru lögð fram drög að friðlýsingarskilmálum. Óskað er eftir afstöðu bæjarstjórnar Vesturbyggðar til friðlýsingar Látrabjargs.
Til máls tók: Forseti,
Bæjarstjórn Vesturbyggðar ítrekar fyrri bókun sína af 346. fundi og fagnar áformum um friðlýsingu Látrabjargs. Mælt hefur verið fyrir um í aðalskipulagi Vesturbyggðar um árabil að svæðið verði friðlýst, með sérstakri áherslu á sjófuglabyggðir, fjörusvæði, minjar, útivist og fleira. Bæjarstjórn er sammála um að friðlýsing svæðisins sé nauðsynleg aðgerð í ljósi fjölda þeirra ferðamanna sem fer um svæðið ár hvert og tekur undir þau sjónarmið sem koma fram í friðlýsingarskilmálum svæðisins og fagnar því að skilmálarnir sem nú liggi fyrir séu unnir í góðu samráði við landeigendur. Með vísan til 38. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 samþykkir bæjarstjórn Vesturbyggðar fyrir sitt leyti að Látrabjarg verði friðlýst.
Málsnúmer 2003011 3
2. Sameining sveitarfélaga - könnun á hagkvæmni
Lögð fram bókun bæjarráðs Vesturbyggðar af 912. fundi ráðsins 6. janúar 2021. Í bókuninni er lagt til við bæjarstjórn að unnin verði greining og könnun þess efnis hver sé hagkvæmni sameiningar Vesturbyggðar við Tálknafjarðahrepp og að bæjarstjóra verði falið að sækja um styrk til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, til að vinna slíka könnun.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að láta vinna greiningu og könnun á hagkvæmni þess að Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur sameinist og sækja til þess styrk til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Bæjarstjórn Vesturbyggðar telur nauðsynlegt að fyrir liggi greining á því hver raunveruleg hagkvæmni er af því að eitt sveitarfélag verði til á sunnanverðum Vestfjörðum, m.a. í ljósi þeirra fjárveitinga sem standa sveitarfélögum til boða vegna sameininga og með tilliti til samlegðaráhrifa og rekstrarhagkvæmni fyrir íbúa og atvinnulíf. Ljóst má vera að með ennfrekari uppbyggingu innviða á svæðinu, s.s. með gerð jarðganga undir Mikladal og Hálfdán verði til enn öflugri heild sem nauðsynlegt er að stilla saman með skilvirkum hætti. Óformlegt samtal sveitarfélaganna tveggja hefur ekki borið árangur né leitt til þess að sveitarfélögin standi tvö að slíkri greiningu og könnun.
Málsnúmer 2101008 6
3. Bygging fjögurra íbúða á Bíldudal - stofnframlög
Lögð fram drög að samningi Vesturbyggðar við Bæjartún íbúðafélag hses. um stofnframlög á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016, til byggingar fjögurra almennra íbúða, í 10 íbúða fjölbýlishúsi sem byggt verður við Hafnarbraut 9 á Bíldudal. Í samningnum er gert ráð fyrir stofnframlagi sem nemur 13.484.781 kr. sem nemur 12% af stofnvirði verkefnisins og skiptist í eftirgjöf á opinberum gjöldum og beinu fjárframlagi til húsnæðissjálfseignarstofnunarinnar. Bæjarráð Vesturbyggðar staðfesti samninginn fyrir sitt leyti á 911. fundi sínum 17. desember 2020 og vísaði honum til bæjarstjórnar til staðfestingar. Gert er ráð fyrir framlaginu í fjárhagsáætlun Vesturbyggðar fyrir árið 2021.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn staðfestir samninginn samhljóða.
Málsnúmer 2008026 6
4. Deiliskipulag fyrir fiskeldi - Seftjörn.
Tekin fyrir endurbætt tillaga að deiliskipulagi fyrir fiskeldi, Seftjörn lóð 1, lagfærð 11. janúar 2021. Fyrir liggur einnig umsögn Umhverfisstofnunar, dagsett 8. janúar 2021, en tekið hefur verið tillit til allra athugasemda í endurbættri tillögu að deiliskipulagi. Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 80. fundi sínum 14. janúar 2021 og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa afgreiðslu hennar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2004019 12
5. Reglur um sölu á lausafé Vesturbyggðar
Lögð fyrir drög að reglum um sölu lausafjár í eigu Vesturbyggðar. Í reglunum er mælt fyrir um að lausafé þar sem söluverðmæti er undir 500.000 kr. sé forstöðumanni heimilt að selja í beinni sölu án tilboða. Lausafé þar sem söluverðmæti er hærra en 500.000 kr. en lægra en 2 millj. kr. skal auglýsa í samræmi við reglurnar. Lausafé þar sem söluverðmæti er yfir 2 millj. kr. skal bæjarstjórn veita samþykki fyrir.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir reglur um sölu lausafjár í eigu Vesturbyggðar og felur bæjarstjóra að undirrita þær og birta á heimasíðu sveitarfélagsins.
Málsnúmer 2101032
6. Reglur um dagforeldra í Vesturbyggð
Lögð fram drög að reglum um leyfisveitingu til daggæslu barna á Barðaströnd og reglur Vesturbyggðar um niðurgreiðslu vegna daggæslu barna á Barðasrönd. Reglurnar eru unnar í samræmi við áherslur í fjárhagsáætlun 2021, þar sem mælt er fyrir um aukinn stuðning við barnafjölskyldur á Barðaströnd. Samkvæmt reglunum mun þeim sem áhuga hafa á að starfa sem dagforeldri á Barðaströnd standa til boða aðstaða án endurgjalds í húsnæði Birkimelsskóla og þá styrkir sveitarfélagið viðkomandi dagforeldri til að sækja nauðsynleg námskeið sem og unnt er að sækja um stuðningsstyrk skv. reglum Vesturbyggðar. Fræðslu- og æskulýðsráð og velferðarráð hafa fjallað um drögin.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn vísar reglunum til bæjarráðs til frekari úrvinnslu og felur bæjarráði endanlega afgreiðslu.
Málsnúmer 1906016 7
Fundargerð
7.
Menningar- og ferðamálaráð - 13
Lögð fram til kynningar fundargerð 13. fundar menningar- og ferðamálaráðs, fundurinn var haldinn 8. desember 2020. Fundargerðin er í 4 liðum.
- 7.1. #2010054 – Staðir-Places 2021 - Styrkbeiðni
- 7.2. #2005013 – Styrkumsóknir Menningar-og ferðamálaráðs - 2020
- 7.3. #2002081 – Gamla smiðjan á Bíldudal
- 7.4. #2012003 – Bókasöfn Vesturbyggðar - kynning
Málsnúmer 2011008F
8.
Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 59
Lögð fram til kynningar fundargerð 59. fundar samráðsnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðahrepps, fundurinn var haldinn 17. desember 2020. Fundargerðin er í 6 liðum.
- 8.1. #2001016 – Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar
- 8.2. #2101014 – Samgöngur Ferjan Baldur
- 8.3. #2101015 – Almenningssamgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum
- 8.4. #2101016 – Starfsemi Minjasafns Egils Ólafssonar
- 8.5. #2011074 – Safnalóð - Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti
- 8.6. #2006085 – Úttekt og greining á samrekstri slökkviliðs og sjúkraflutninga
Málsnúmer 2012005F
9.
Bæjarráð - 911
Lögð fram til kynningar fundargerð 911. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 17. desember 2020. Fundargerðin er í 15 liðum.
- 9.1. #2002094 – Ástand vega í Vesturbyggð
- 9.2. #2012025 – Mál nr. 369 um Hálendisþjóðgarð. Ósk um umsögn
- 9.3. #2012006 – Mál nr. 113 um félagsráðgjöf í grunn- og framhaldsskólum. Ósk um umsögn
- 9.4. #2012012 – Manntal og húsnæðistal 1 janúar 2021
- 9.5. #2012023 – Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar nr. 181, 182 og 183
- 9.6. #2012027 – Fundargerð nr. 892 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
- 9.7. #2012029 – Fundur Félags skógarbænda á Vestfjörðum 10. desember 2020
- 9.8. #2012017 – Vetrarþjónusta á Rauðasandsvegi (614)
- 9.9. #2005091 – Fjárhagsáætlun 2021 - 2024
- 9.10. #2010054 – Staðir-Places 2021 - Styrkbeiðni
- 9.11. #2008026 – Bygging fjögurra íbúða á Bíldudal - stofnframlög
- 9.12. #2011043 – Breyting á eldissvæðum Arctic Sea Farm og Fjarðalax í Patreksfirði og Tálknafirði. Umsagnarbeiðni og rafræn greinargerð
- 9.13. #2012028 – Leyfi til sölu flugeldum og sýningarleyfi - Björgunarsveitin Kópur Bíldudal
- 9.14. #2010046 – Ofanflóðavarnir á Bíldudal
- 9.15. #2012007 – Stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, 1812008 - Bláskógarbyggð
Málsnúmer 2012003F
10.
Bæjarráð - 912
Lögð fram til kynningar fundargerð 912. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 6. janúar 2021. Fundargerðin er í 14 liðum.
- 10.1. #2012047 – Þátttaka í stafrænu teymi sveitarfélaga
- 10.2. #2012033 – Tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna COVID-19
- 10.3. #2012036 – Mál nr. 354 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Ósk um umsögn
- 10.4. #2012038 – Mál nr. 356 um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála. Ósk um umsögn
- 10.5. #2012037 – Mál nr. 355 um Barna- og fjölskyldustofu. Ósk um umsögn
- 10.6. #2003010 – Fundargerðir stjórnar Vestfjarðastofu 2020
- 10.7. #2004011 – Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði
- 10.8. #2012049 – Umsagnarbeiðni vegna Hótel Breiðavík
- 10.9. #2012048 – Tillaga að viðauka við landsskipulagsstefnu
- 10.10. #1906041 – Lás ehf. Reikningar vegna gatnagerðar, Járnhóll.
- 10.11. #2012054 – Leigufélagið Bríet - uppbygging íbúða á Patreksfirði
- 10.12. #2101008 – Sameining sveitarfélaga - könnun á hagkvæmni
- 10.13. #2010046 – Ofanflóðavarnir á Bíldudal
- 10.14. #1903144 – Óbyggðanefnd - Tilkynning um meðferð óbyggðanefndar á svonefndu svæði 10C, Barðastrandarsýslum
Málsnúmer 2012007F
11.
Fræðslu- og æskulýðsráð - 68
Lögð fram til kynningar fundargerð 68. fundar fræðslu- og æskulýðsráðs, fundurinn var haldinn 13. janúar 2021. Fundargerðin er í 6 liðum.
- 11.1. #1906016 – Reglur um dagforeldra í Vesturbyggð
- 11.2. #1906106 – Öryggi og vinnuaðstaða í skólum Vesturbyggðar
- 11.3. #2101013 – Starfsemi menntastofnanna á tímum Covid-19
- 11.4. #2003007 – Patreksskóli - skóladagatal 2020-2021
- 11.5. #2101012 – Niðurstaða fjárhagsáætlunar 2021 í fræðslu- og æskulýðsmálum
- 11.6. #1904012 – Félagsmiðstöðin Vest End - Eldvarnareftirlit
Málsnúmer 2012001F
12.
Skipulags og umhverfisráð - 80
Lögð fram til kynningar fundargerð 80. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 14. janúar 2021. Fundargerðin er í 6 liðum.
- 12.1. #2004019 – Deiliskipulag fyrir fiskeldi - Seftjörn.
- 12.2. #2101022 – Arnarbakki 5. Umsókn um byggingaráform.
- 12.3. #2101020 – Balar 9-11, umsókn um byggingaráform.
- 12.4. #2101021 – Balar 13-15, umsókn um byggingaráform.
- 12.5. #2010046 – Ofanflóðavarnir á Bíldudal
- 12.6. #2012048 – Tillaga að viðauka við landsskipulagsstefnu
Málsnúmer 2012004F
13.
Hafna- og atvinnumálaráð - 27
Lögð fram til kynningar fundargerð 27. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 18. janúar 2021. Fundargerðin er í 4 liðum.
- 13.1. #1809005 – Önnur mál
- 13.2. #2101034 – Umsókn um stöðuleyfi við Verbúð.
- 13.3. #2101025 – Patrekshöfn, eyðing vargfugls.
- 13.4. #2012034 – Fundargerð 429 og 430 stjórnar Hafnarsambands Íslans
Málsnúmer 2101003F
14.
Velferðarráð - 35
Lögð fram til kynningar fundargerð 35. fundar velferðarráðs, fundurinn var haldinn 18. janúar 2021. Fundargerðin er í 4 liðum.
- 14.1. #1906016 – Reglur um dagforeldra í Vesturbyggð
- 14.2. #1904013 – Trúnaðarmál
- 14.3. #2012026 – Fundargerð Heilbrigðisnefndar 10 desember 2020
- 14.4. #2101003 – Umsókn um greiðslur úr ríkissjóði vegna barna-ungmenna með fjölþættan vanda og-eða miklar þroska- og geðraskanir ár 2020
Málsnúmer 2101002F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:19
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 356. fundar miðvikudaginn 20. janúar 2021 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Ásgeir Sveinsson boðaði forföll í hans stað sat fundinn Guðrún Eggertsdóttir. Iða Marsibil Jónsdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.