Fundur haldinn í fjarfundi, 20. maí 2020 og hófst hann kl. 17:00
Nefndarmenn
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) varamaður
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
- María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Ársreikningur Vesturbyggðar 2019
Lagður fram til seinni umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2019.
Ársreikningurinn samþykktur samhljóða.
Rekstrartekjur A og B hluta bæjarsjóðs voru 1.546 millj. kr., þar af voru 1.282 millj. kr. vegna A hluta. Samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta bæjarsjóðs var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 10 millj. kr. en í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 27 þúsund krónur. Rekstrarafkoman ársins 2018 var neikvæð um 96 milljónir og batnar því um 106 milljónir á milli ára.
Fjárfest var á árinu fyrir 97 millj. kr. í fastafjármunum og tekin voru ný lán á árinu 2019 uppá 130 millj. kr. Afborganir langtímalána námu 150 millj. kr.
Heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi A og B hluta námu 2.551 millj. kr. í árslok 2019. Skuldir A hluta námu í árslok 2019 1.514 millj. kr., heildarskuldbindingar (A og B hluta) námu um 2.018 millj. kr. og höfðu hækkað um réttar 45 millj. kr. frá árinu 2018.
Skuldaviðmið var 105% í árslok 2019 og hafði lækkað um 4% frá árinu 2018.
Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi var 532 millj. kr. í árslok 2019 og var eiginfjárhlutfall 20,9% og er óbreytt frá árslokum 2018.
Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi A og B hluta var 138 millj. kr. Nam handbært fé í árslok 5,7 millj. kr. en var 3,7 millj. kr. árið áður.
Málsnúmer 2004028 3
2. Fjárhagsáætlun 2020 - viðaukar
Teknir eru fyrir þrír viðaukar sem lagðir voru fyrir á 895. fundi bæjarráðs Vesturbyggðar.
Viðauki eitt er vegna viðbótar vegna kaupa á Slökkvibifreið, viðauki tvö er vegna sölu á flotbryggju og viðauki þrjú er vegna byggingu lokahús á Bíldudal.
Með samþykkt viðaukanna lækkar fjárfesting í A hluta um 2,5 millj. kr. og í A og B hluta hækkar hún um 1,1 millj. kr. Gert er ráð fyrir lántöku uppá 5,5 millj. kr. Viðaukarnir hafa þau áhrif á rekstrarniðurstöðu A og B hluta að hún fer úr 126,5 millj. kr. í 128,5 millj. kr. rekstrarniðurstaða A hluta breystist ekki. Handbært fé í A - hluta hækkar um 8 millj. kr. og í A og B hluta hækkar handbært fé um 6,4 millj. kr.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukana samhljóða.
Málsnúmer 2005022 7
3. Ráðning skólastjóra Patreksskóla
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs Vesturbyggðar dags. 9. maí 2020, þar sem lagt er til að Ásdís Snót Guðmundsdóttir verði ráðin í starf skólastjóra Patreksskóla. Var fræðslu- og æskulýðsráði kynnt umsókn um stöðu skólastjóra á 62. fundi sínum 13. maí 2020 og leggur ráðið til við bæjarstjórn að gengið verði frá ráðningu Ásdísar frá og með 1. ágúst 2020.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir að ráða Ásdísi Snót Guðmundsdóttur sem skólastjóra Patreksskóla og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs ásamt bæjarstjóra að ganga frá ráðningasamningi.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar færir Gústafi Gústafssyni, skólastjóra miklar þakkir fyrir hans mikilvæga og góða starf sem skólastjóri Patreksskóla.
Málsnúmer 2005026 3
4. Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir
Lögð var fram tillaga um breytingar á nefndarskipan í fjallskilanefnd.
Víðir Guðbjartsson tekur sæti sem aðalmaður í fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðahrepps í stað Rebekku Hilmarsdóttur.
Tillagan er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2005004 7
5. Samstarfs- og þjónustusamningar ásamt viðaukum 2020
Lagður fyrir samstarfs- og þjónustusamningur ásamt viðaukum 2020 við Byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks á Vesfjörðum.
Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri, MÓÓ og GE.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn.
Málsnúmer 2005020 2
6. Umsókn um stofnframlög vegna íbúða á Bíldudal
Lögð fyrir umsókn um stofnframlög vegna íbúða á Bíldudal. Umsóknin hafði áður verið lögð fyrir á 895. fundi bæjarráðs.
Til máls tóku: Forseti og FM.
Bæjarstjórn samþykkir að taka þátt í samstarfinu og að veita stofnframlagið ef fáist stofnframlög frá ríkinu. Bæjarstjóra falið að vinna að málinu áfram.
Málsnúmer 2005023 2
7. Strandgata 10-12, Bíldudal. Umsókn um byggingarleyfi, vatnshreinsistöð.
Tekið fyrir eftir auglýsingu breyting á deiliskipulagi Bíldudalshafnar, aukið nýtingarhlutfall.
Breytingartillagan var grenndarkynnt fyrir nærliggjandi lóðarhöfum með athugasemdafrest til 28. apríl 2020, þ.e. Íslenska kalkþörungafélaginu, Skrímslasetrinu og sóknarnefnd Bíldudalssóknar. Athugasemd barst frá Skrímslasetrinu og frá Íslenska Kalkþörungafélaginu. Athugasemdir leiddu ekki til efnislegra breytinga á tillögunni en þess verður gætt við uppsetningu að samráð verði haft við nærliggjandi lóðarhafa um bestu mögulega útfærslu.
Til máls tóku: Forseti, MJ, MÓÓ, FM, GE og ÞSÓ.
Bæjarstjórn tekur undir bókun hafna- og atvinnumálaráðs sem tók undir athugasemdir Skrímslaseturs varðandi frágang og mögulega lyktarmengun. Eins þarf að tryggja að lekavarnir og þró séu fullnægjandi svo ekki sé hætta á að meltan berist yfir á nærliggjandi svæði verði óhapp í stöðinni. Ennfremur ítrekar ráðið áherslu á að góð umgengni verði höfð að leiðarljósi á athafnasvæði stöðvarinnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 greiddum atkvæðum að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. MÓÓ greiðir atkvæði á móti.
Málsnúmer 2002173 5
8. Formlegt erindi vegna umhverfisvottunar Vestfjarða
Erindi frá Maríu H. Maack verkefnisstjóra Náttúrustofu Vestfjarða fyrir Umhverfisvottun Vestfjarða, Earth check dags. 6. maí 2020. Erindið var tekið fyrir á 895. fundi bæjarráðs, 12. maí sl. og á 72. fundi skipulags- og umhvefisráðs, 14. maí sl.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn tekur undir bókun skipulags- og umhverfisráðs og staðfestir skipan fulltrúa í græna teymið og áhættumat vegna loftlagsvár verði tekið til skoðunar samhliða vinnu við endurskoðun aðalskipulags Vesturbyggðar.
Málsnúmer 2005010 5
9. Brunnar 10, Bílastæði.
Erindi frá Hlyn F. Halldórssyni dags. 6. maí 2020. Í erindinu er sótt um leyfi til að útbúa bílastæði neðan við Brunna 10, Patreksfirði. Aðkoma að bílastæði yrði því frá Bölum. Erindinu fylgir teikning er sýnir fyrirkomulag bílastæðisins.
Erindið hafði áður verið tekið fyrir á 72. fundi skipulags- og umhverfisráðs sem haldinn var 14. maí sl. þar sem misrituð var aðkoman að bílastæðinu.
Bæjarstjórn samþykkir erindið.
Málsnúmer 2005038 2
Fundargerð
10.
Bæjarráð - 895
Lögð fram til kynningar fundargerð 895. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 12. maí 2020. Fundargerðin er í 32 liðum.
- 10.1. #2005022 – Fjárhagsáætlun 2020 - viðaukar
- 10.2. #2004074 – Beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda, Hótel Látrabjarg og Aðalstræti 120 Patreksfirði
- 10.3. #2005029 – Umsagnarbeiðni v. rekstarleyfis Flak ehf, Patreksfirði
- 10.4. #2005023 – Umsókn um stofnframlög vegna íbúða á Bíldudal
- 10.5. #2005009 – Sumarátaksstarf námsmanna 2020
- 10.6. #2005020 – Samstarfs- og þjónustusamningar ásamt viðaukum 2020
- 10.7. #2005032 – Gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum
- 10.8. #2005019 – Tilnefning í fulltrúaráð Vestfjarðastofu
- 10.9. #2002081 – Gamla smiðjan á Bíldudal
- 10.10. #2004171 – Lækkun mánaðarlegra greiðslna vegna útgjaldajöfnunarframlag og framlag vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti
- 10.11. #2004026 – Ofanflóðavarnir - Patreksfjörður - Urðargata, Hólar og Mýrar.
- 10.12. #2005021 – Áhrif Covid - 19 á fjárhagsáætlun 2020 - sviðsmyndir
- 10.13. #2004059 – Framlenging á samkomulagi um sorpþjónustu
- 10.14. #2004164 – Mál nr. 643. ósk um umsögn forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeli og áreitni, áætlun 2021-2025
- 10.15. #2005030 – Mál nr. 662, samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir, ósk um umsögn
- 10.16. #2005011 – Mál nr. 707 breyting á barnalögum nr. 76-2003, ósk um umsögn
- 10.17. #2005002 – Mál nr. 715 eignarráð og nýting fasteigna, ósk um umsögn
- 10.18. #2005012 – Mál nr. 734, svæðisbundin flutningsjöfnuður, ósk um umsögn
- 10.19. #2003010 – Fundargerðir stjórnar Vestfjarðastofu 2020
- 10.20. #2005027 – Ársreikningur Fjórðungssambands Vestfirðingar 2019
- 10.21. #2004169 – Fundargerð nr. 881 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
- 10.22. #2005003 – Fundargerð nr. 882 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
- 10.23. #2004065 – Ísland ljóstengt - Látrabjarg
- 10.24. #2004162 – Fundargerð Breiðafjarðarnefndar nr. 177
- 10.25. #2004160 – Grunur á mögulegri slysasleppingu úr kví í Eiri í Patreksfirði
- 10.26. #2004159 – Grunur á mögulegri slysaleppingu úr kví í Hringsdal Arnarfirði
- 10.27. #2005026 – Ráðning skólastjóra Patreksskóla
- 10.28. #2005028 – Bann við hrognkelsaveiðum árið 2020
- 10.29. #2005001 – Tillögur um eflingu atvinnu í Vesturbyggð - Strandveiðifélagið Krókur
- 10.30. #2004156 – Frístundabyggð undir Taglinu beiðni um úthlutun lóða
- 10.31. #2005010 – Formlegt erindi vegna umhverfisvottunar Vestfjarða
- 10.32. #2003051 – Beiðni um niðurfellingu fasteignaskatts fyrir apríl og maí
Málsnúmer 2005001F
11.
Fræðslu- og æskulýðsráð - 62
Lögð fram til kynningar fundargerð 62. fundar fræðslu- og æskulýðsráðs, fundurinn var haldinn 13. maí 2020. Fundargerðin er í 5 liðum.
- 11.1. #2005018 – Leikskólinn Araklettur - Starfsáætlun 2020-2021
- 11.2. #2005017 – Leikskólinn Araklettur - sérkennsluskýrsla 2020
- 11.3. #2005016 – Grunnskólar Vesturbyggðar - reglur um sjúkrakennslu
- 11.4. #2003050 – Vinnuskóli 2020
- 11.5. #2005026 – Ráðning skólastjóra Patreksskóla
Málsnúmer 2005002F
12.
Menningar- og ferðamálaráð - 10
Lögð fram til kynningar fundargerð 10. fundar menningar- og ferðamálaráðs, fundurinn var haldinn 12. maí 2020. Fundargerðin er í 3 liðum.
- 12.1. #2002081 – Gamla smiðjan á Bíldudal
- 12.2. #2005013 – Styrkumsóknir Menningar-og ferðamálaráðs - maí 2020
- 12.3. #2002243 – Rekstur tjaldsvæðis á Patreksfirði
Málsnúmer 2005003F
13.
Skipulags og umhverfisráð - 72
Lögð fram til kynningar fundargerð 72. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 14. maí 2020. Fundargerðin er í 11 liðum.
- 13.1. #2002173 – Strandgata 10-12. Umsókn um byggingarleyfi, vatnshreinsistöð.
- 13.2. #2004062 – Ósk um umsögn um skipulagsýsingu v. endurskoðunar aðalskipulags Ísafjarðabæjar
- 13.3. #2005051 – Rauðsdalur - Tjaldsvæði.
- 13.4. #2005039 – Leiksvæði á Patreksfirði við íþróttavöll - Aðalstræti 5.
- 13.5. #2005038 – Brunnar 10, Bílastæði.
- 13.6. #2005037 – Hagi II - umsókn um stöðuleyfi
- 13.7. #2005036 – Hagabúð - umsókn um byggingarleyfi
- 13.8. #2005043 – Innri Miðhlíð - Ósk um leyfi til niðurrifs.
- 13.9. #2005010 – Formlegt erindi vegna umhverfisvottunar Vestfjarða
- 13.10. #2004166 – Ósk um breytingu á aðalskipulagi VB vegna nýs Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði og Bíldudalsvegar
- 13.11. #2005032 – Gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum
Málsnúmer 2005004F
14.
Hafna- og atvinnumálaráð - 19
Lögð fram til kynningar fundargerð 19. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 18. maí 2020. Fundargerðin er í 12 liðum.
Til máls tóku: Forseti, GE, bæjarstjóri og MÓÓ.
- 14.1. #2005059 – Kynning á langtímaáformum Arctic Fish ehf.
- 14.2. #2004172 – Flutningur á kvíum frá Hringsdal til Steinanes
- 14.3. #2005055 – Mælingar í Patreksfirði og Arnarfirði
- 14.4. #2005040 – Nr. 422 fundargerð stjórnar Hafnarsambands Íslands
- 14.5. #2002173 – Strandgata 10-12. Umsókn um byggingarleyfi, vatnshreinsistöð.
- 14.6. #2005024 – Lagaleg afstaða Arnarlax til Innheimtu aflagjalda vegna ársins 2020
- 14.7. #2005032 – Gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum
- 14.8. #2005062 – Bláfáni 2020
- 14.9. #2005063 – Umsókn um stöðuleyfi fyrir búnað tengdan meltuvinnslu
- 14.10. #2005064 – Þórsgata 7. Umsókn um stöðuleyfi fyrir geymslugám.
- 14.11. #2005058 – Umgengnismál Hafnarsvæðum.
- 14.12. #2005001 – Tillögur um eflingu atvinnu í Vesturbyggð - Strandveiðifélagið Krókur
Málsnúmer 2005005F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:05
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 348. fundar miðvikudaginn 20. maí kl. 17:00.
Iða Marsibil Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Forseti bar undir fundinn að tekið verði fyrir afbrigði á dagskrá, að við bætist liður 9 málsnr. 2005038 - Brunnar 10, Bílastæði og færast dagskrárliðir 9 - 13 niður um einn dagskrárlið og verða númer 10 - 14.
Samþykkt samhljóða.
Þar sem um fjarfund er að ræða er fundurinn ekki opinn almenningi en upptaka frá fundinum verður sett inn á heimasíðu Vesturbyggðar.