Fundur haldinn í Ráðhúsi Vesturbyggðar, 24. september 2019 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) varamaður
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Esther Gunnarsdóttir (EG) varamaður
- María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Stjórnskipan Vesturbyggðar - breyting á skipan í ráð og nefndir
Forseti bar upp tillögur um breytingar á nefndarskipan annarsvegar í fræðslu- og æskulýðsráði. Þórkatla Soffía Ólafsdóttir tekur sæti sem varamaður í stað Sædísar Eiríksdóttur og hins vegar í menningar- og ferðamálaráð en þar taka Iða Marsibil Jónsdóttir og Jón Árnason sæti sem varamenn í stað Maríu Ragnarsdóttur og Arons Inga Guðmunssonar.
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 1905023 7
2. Fjallskil - kostnaður
Tekin fyrir bókun fjallskilanefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðar þar sem því er vísað til bæjarstjórnar Vesturbyggðar að heimilt verði að leggja allt að 2% á landverð allra jarða í Vesturbyggð og Tálknafjarðahrepp, þar með talið eyðijarðir, að frádregnu verði ræktaðs lands og hlunninda miðað við gildandi fasteignamat á hverjum tíma, í samræmi við fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur nr. 716/2012, sem innheimt verði samhliða fasteignagjöldum 2020. Nefndin leggur einnig til að á árinu 2020 verði lagt á fjallskilaskylt búfé í sveitarfélögunum gjald sem nemur 300 kr. á hverja sauðkind skv. skráningu Matvælastofnunar sem renna skal í fjallskilasjóð. Tekjur vegna gjaldtökunnar renna óskipt í fjallskilasjóð og ráðstafað verður úr honum í samræmi við gildandi fjallskilasamþykkt.
Til máls tóku: Forseti, RH og GE.
Tillaga nefndarinnar samþykkt með sex atkvæðum, GE situr hjá
Málsnúmer 1903176 5
3. Fjárhagsáætlun 2019 - Viðaukar
Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2019 sem lagður var fyrir á 878. fund bæjarráðs. Viðaukinn er gerður vegna launakostnaður og rekstrarksotnaður leikskóladeildar við Patreksskóla samtals 8.1 milljón. Kostnaði er mætt með því að lækka launakostnað í málaflokki 09 um 2.1 milljón og í málafl. 33 um 3,4 milljónir. Gerð er hagræðingarkrafa í rekstri málaflokks 04 uppá 2,6 milljónir. Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu A og B hluta né hreyfir hann handbært fé.
Til máls tóku: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.
Málsnúmer 1903392 13
4. Bygging sundlaugar á Bíldudal, áskorun frá bæjarbúum.
Lögð fram áskorun til bæjarstjórnar Vesturbyggðar þar sem skorað er á Vesturbyggð að hefja undirbúning að byggingu sundlaugar á Bíldudal.
Iða Marsibil Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarndi bókun:
Ég fagna því frumkvæði sem íbúar Bíldudals hafa tekið við söfnun undirskrifta til þess að setja fram skýlausa kröfu um það að bæjarstjórn hefjist handa við undirbúning byggingu sundlaugar á staðnum sem allra fyrst. Að mínu mati eru það sjálfsögð lífsgæði í nútíma samfélagi að sundlaug sé á Bíldudal sem og í öðrum þéttbýliskjörnum í sveitarfélaginu og löngu orðið tímabært að bæði ungir sem aldnir geti notið þeirrar afþreyingar og hreyfingar sem iðkun sunds hefur í för með sér án þess að þurfa að sækja sundlaugar í aðra byggðakjarna sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn tekur undir bókun forseta og vísar tillögunni áfram til gerðar fjárhagsáætlunar 2020.
Til máls tóku: Forseti og FM.
Málsnúmer 1909040 2
5. Ósk um stofnun lóðar. Efri-Arnórsstaðir.
Erindi frá Ingva Ó. Bjarnasyni, Neðri-Arnórsstöðum. Í erindinu er óskað eftir stofnun lóðar úr landi Efri-Arnórsstaða, Barðaströnd(139777). Áætluð stærð lóðar er 3106 m2. Umsókninni fylgir lóðarblað.
Bæjarstjórn samþykkir stofnun lóðarinnar.
Málsnúmer 1908047 2
6. Stekkar 13 - ósk um lóðarleigusamning.
Erindi frá Ingólfi M. Ingvasyni. Í erindinu er óskað eftir nýjum lóðarleigusamningi vegna Stekka 13, Patreksfirði.
Til máls tóku: Forseti, EG, RH og FM
Bæjarstjórn samþykkir að gerður verði nýr lóðarleigusamningur við húseigendur að Stekkum 13, Patreksfirði.
Málsnúmer 1908033 2
7. Arnarbakki 5. Umsókn um lóð.
Erindi frá Jens H. Valdimarssyni f.h. Bernódus ehf. Í erindinu er sótt um byggingarlóðina að Arnarbakka 5, Bíldudal til byggingar einbýlishúss.
Til máls tóku: Forseti, GE og RH.
Bæjarstjórn samþykkir úthlutun lóðarinnar að Arnarbakka 5 á Bíldudal til umsækjenda.
Málsnúmer 1909001 2
8. Hjótur 1, Örlygshöfn, L139872 - Gerð deiliskipulags.
Tekin fyrir Hnjótur 1 deiliskipulag, lýsing skipulagsverkefnis.
Hafin er undirbúningur við gerð deiliskipulags við Hnjót 1 en um er að ræða skilgreiningu á tjaldsvæði og svæði fyrir verslun og þjónustu. Samhliða deiliskipulaginu verður unnin breyting á aðalskipulagi sem verður auglýst samtímis.
Bæjarstjórn frestar afgreiðslu máls þar sem ekki liggur fyrir samþykki landeiganda í óskiptu landi.
Málsnúmer 1906127 4
9. Hnjótur 1. Breyting á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018
Tekin fyrir breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018, Breyting við Hnjót 1 lýsing skipulagsverkefnis, dagsett 11. september 2019.
Hafinn er undirbúningur við gerð deiliskipulags við Hnjót 1 í Vesturbyggð en um er að ræða breytta landnotkun, frá landbúnaðarlandi yfir í verslun og þjónustu. Deiliskipulagstillaga þessi kallar á breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018. Eftirfarandi lýsing er í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin tekur til skilgreiningar á nýju svæði verslunar- og þjónustu V10, stærð svæðisins er undir 5 ha og verður því markað hring á uppdrætti aðalskipulagsins.
Unnið er að deiliskiplagstillögu samhliða aðalskipulagsbreytingunni og verða tillögurnar auglýstar samtímis.
Bæjarstjórn frestar afgreiðslu máls þar sem ekki liggur fyrir samþykki landeiganda í óskiptu landi.
Málsnúmer 1909053 2
10. Samstarfs- og þjónusamningur við BsVest um málefni fatlaðs fólks
Samstarfs- og þjónustusamningur við Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks lagður fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn.
Málsnúmer 1906129 3
Fundargerð
11.
Bæjarráð - 878
Lögð er fram til kynningar fundargerð 878. fundar bæjarráðs sem haldinn var 3. september 2019. Fundargerðin er í 5 liðum.
Lagt fram til kynningar.
- 11.1. #1907127 – Ferðaþjóustan Hnjóti, umsagnarbeiðni
- 11.2. #1903243 – Litla-Eyri, Bíldudal. Landspilda undir íbúðarbyggð.
- 11.3. #1903392 – Fjárhagsáætlun 2019 - Viðaukar
- 11.4. #1905041 – Fundargerð stjórnar NAVE nr. 121
Málsnúmer 1908005F
12.
Skipulags og umhverfisráð - 62
Lögð er fram til kynningar fundargerð 62. fundar skipulags- og umhverfisráðs sem haldinn var 2. september 2019. Fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.
- 12.1. #1908047 – Ósk um stofnun lóðar. Efri-Arnórsstaðir.
- 12.2. #1908037 – Aðalstræti 110, umsókn um stöðuleyfi.
- 12.3. #1908035 – Mýrar, Patreksfirði. Hraðakstur.
- 12.4. #1908033 – Stekkar 13 - ósk um lóðarleigusamning.
- 12.5. #1908011 – Flókalundur hraðhleðslustöð, umsókn.
- 12.6. #1908006 – Strandgata 19, Patreksfirði. Umsókn um byggingarleyfi.
- 12.7. #1907095 – Strandgata 10-12. Umsókn um byggingarleyfi, vatnshreinsistöð.
- 12.8. #1909001 – Arnarbakki 5. Umsókn um lóð.
Málsnúmer 1907006F
13.
Fasteignir Vesturbyggðar - 71
Lögð er fram til kynningar fundargerð 71. fundar Fasteigna Vesturbyggðar sem jafnframt var aðalfundur félagsins, fundurinn var haldinn 9. september 2019. Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1908006F
14.
Hafna- og atvinnumálaráð - 11
Lögð er fram til kynningar fundargerð 11. fundar hafna- og atvinnumálaráðs sem haldinn var 4. september 2019. Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1907007F
15.
Vestur-Botn - 7
Lögð er fram til kynningar fundargerð 7. fundar Vestur-Botns sem jafnframt var aðalfundur félagsins, fundurinn var haldinn 9. september 2019. Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1908007F
16.
Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar - 20
Lögð er fram til kynningar fundargerð 20. fundar fjallskilanefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps sem haldinn var 12. september 2019. Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1909005F
17.
Hafna- og atvinnumálaráð - 12
Lögð er fram til kynningar fundargerð 12. fundar hafna- og atvinnumálaráðs sem haldinn var 16. september 2019. Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tóku: Forseti, FM, RH, MÓÓ og EG.
Lagt fram til kynningar.
- 17.1. #1907104 – Hafnasjóður Vesturbyggðar - endurskoðun gjaldskrár.
- 17.2. #1907063 – Bíldudalshöfn. Lenging Kalkþörungabryggju og endurbygging hafskipakants.
- 17.3. #1909003 – Framkvæmdir 2020 - Hafnasjóður Vesturbyggðar
- 17.4. #1903182 – Bláfáni 2019
- 17.5. #1909041 – Úttekt á siglingavernd
- 17.6. #1909015 – Fundargerð nr. 414 Hafnarsambands Íslands og fundargerð nr. 14-16 Siglingaráðs
- 17.7. #1909028 – Fundargerð stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 1909002F
18.
Bæjarráð - 879
Lögð er fram til kynningar fundargerð 879. fundar bæjarráðs sem haldinn var 17. september 2019. Fundargerðin er í 12 liðum.
Lagt fram til kynningar.
- 18.1. #1909037 – Starfsáætlun bæjarráðs haustið 2019
- 18.2. #1909016 – Fundargerð nr. 873 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
- 18.3. #1909028 – Fundargerð stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
- 18.4. #1909014 – Minningardagur um fórnarlömb umhverfisslysa
- 18.5. #1904046 – Fjárhagsáætlun 2020
- 18.6. #1903162 – Rekstur og fjárhagsstaða 2019.
- 18.7. #1905005 – Sala eigna 2019
- 18.8. #1909040 – Bygging sundlaugar á Bíldudal, áskorun frá bæjarbúum.
- 18.9. #1906041 – Lás ehf. Reikningar vegna gatnagerðar, Járnhóll.
- 18.10. #1909035 – Framtíð Breiðafjarðar, erindi
- 18.11. #1906053 – Auglýsing á starfsleyfi Arctic Sea í Patreks- og Tálknafirði
- 18.12. #1909004 – Áskorun vegna hamfarahlýnunar
Málsnúmer 1909008F
19.
Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 55
Lögð er fram til kynningar fundargerð 55. fundar samráðsnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps sem haldinn var 17. september 2019. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tóku: Forseti, GE, RH og FM.
Lagt fram til kynningar.
- 19.1. #1903130 – Minjasafn Egils Ólafssonar - Ársreikningur 2018
- 19.2. #1909044 – Listasafn Vestur-Barðastrandarsýslu
- 19.3. #1909045 – Aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands
- 19.4. #1903024 – Vesturbyggð - Aðalskipulag 2018-2030
Málsnúmer 1909007F
20.
Skipulags og umhverfisráð - 63
Lögð er fram til kynningar fundargerð 63. fundar skipulags- og umhverfisráðs sem haldinn var 17. september 2019. Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tóku: Forseti, FM og GE.
Lagt fram til kynningar.
- 20.1. #1906038 – Fífustaðadalur - Tilkynning um framkvæmdir, Votlendissjóðurinn
- 20.2. #1908022 – Umsögn - Endurskoðun Aðalskipulags Tálknafjarðarhrepps 2019-2031
- 20.3. #1906127 – Hjótur 1, Örlygshöfn, L139872 - Gerð deiliskipulags.
- 20.4. #1909053 – Hnjótur 1. Breyting á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018
- 20.5. #1907124 – Ósk eftir landi í Mikladal
- 20.6. #1903024 – Vesturbyggð - Aðalskipulag 2018-2030
- 20.7. #1909006 – Brunnar Patreksfirði, gangstígur
- 20.8. #1904046 – Fjárhagsáætlun 2020
Málsnúmer 1909001F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 339. fundar þriðjudaginn 24. september 2019 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Ásgeir Sveinsson er fjarverandi en í hans stað situr fundinn Guðrún Eggertsdóttir, Magnús Jónsson er fjarverandi í hans stað situr fundinn Esther Gunnarsdóttir. Guðrún hefur óskað eftir því að fá að sitja fundinn í fjarfundi og er það borið upp til samþykktar. Það er samþykkt samhljóða.
Forseti bæjarstjórnar Iða Marsibil Jónsdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.