Fundur haldinn í Ráðhúsi Vesturbyggðar, 20. febrúar 2019 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) varamaður
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) skrifstofustjóri
- Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
- Jörundur Garðarsson (JG) varamaður
- Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
- María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir starfandi skrifstofu- og fjármálastjóri
Almenn erindi
1. Vesturbyggð - Aðalskipulag 2018-2030
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir að áfram verði haldið með endurskoðun Aðalskipulags Vesturbyggðar í samræmi við bókun bæjarstjórnar frá 307. fundi sem haldinn var 15. mars 2017 en þá bókaði bæjarstjórn eftirfarandi undir 8. lið fundarins:
Lögð fram tíma- og verkáætlun um vinnslu endurskoðunar aðalskipulags Vesturbyggðar.
Bæjarstjórn samþykkir að fara í endurskoðun á aðalskipulagi Vesturbyggðar og felur forstöðumanni tæknideildar að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 1703028 5
2. Auðshaugur. Umsókn um stofnun lóðar.
Erindi frá Valgerði Ingvadóttur og Bjarna S. Kristjánssyni. Í erindinu er óskað eftir stofnun lóðar úr landi Auðshaugs, Barðaströnd (landeignarnr. 139779). Nýstofnuð lóð skal bera heitið Auðnar og er að stærð 5.041 m2.
Til máls tóku: Forseti, MJ, GE, bæjarstjóri og ÁS.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir stofnun lóðarinnar.
Málsnúmer 1902044 2
3. Skipurit Vesturbyggð
Gerður Björk Sveinsdóttir, fundarritari vék af fundi undir liðnum. Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri tók við ritun fundarins.
Bæjarstjórn staðfestir bókun bæjarráðs um tillögu að nýju skipuriti fyrir Vesturbyggð sem áætlað er að taki gildi 1. maí 2019. Bæjarstjóra falið að innleiða breytingarnar, endurnýja erindisbréf og vinna breytingar á samþykktum um stjórn Vesturbyggðar til samræmis við nýtt skipurit. Þá skuli auglýsa starf sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs laust til umsóknar.
Til máls tóku: Forseti og GE.
Samþykkt með sex atkvæðum. GE sat hjá við atkvæðagreiðslu.
Málsnúmer 1811002 3
4. Byggðakvóti - Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið - Auglýsing umsóknar um byggðarkvóta fiskveiðiársins 2018-19
Bókun bæjarráðs 1. liður frá 861. fundi borin upp til samþykktar.
"a) Ákvæði b. lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi sveitarfélagi 1. júlí 2018. b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega, af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi sveitarfélags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu í þorskígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018, þó ekki hærra en 20% af því sem eftir stendur, en að hámarki 25 þorskígildistonn á hvert fiskiskip. c) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr. d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019"
Til máls tóku: Forseti, MJ, ÁS, ÞSÓ og GE.
MJ og ÞSÓ lýsa yfir vanhæfi.
Bókun bæjarráðs samþykkt með þremur atkvæðum, IMJ, JG og MÓÓ greiddu atkvæði með, ÁS greiddi atkvæði á móti og GE sat hjá við atkvæðagreiðslu.
Lagt fyrir bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins dags. 15. febrúar 2019 þar sem tillögum að sérreglum Vesturbyggðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa er hafnað.
Sveitarfélaginu er veittur frestur til 22. febrúar nk. til þess að gera athugasemdir við ákvörðun ráðuneytisins.
Forseti leggur til að Bæjarstjóra verði falið að senda athugasemdir sveitarfélagsins í samráði við bæjarráð við ákvörðun ráðuneytisins innan tilskilins frests.
MJ og ÞSÓ lýsa yfir vanhæfi.
Samþykkt með þremur atkvæðum, IMJ, JG og MÓÓ greiða atkvæði með, GE og ÁS sitja hjá.
Málsnúmer 1810030 6
5. Tjaldsvæði
Tillaga 863. fundar bæjarráðs frá 12. febrúar, um breytingar á gjaldskrá tjaldsvæða þannig að stakt gjald verði 1.500 í stað 1.700 og gjald fyrir afnot af þvottavél verði 1.000 í stað 1.350. Forseti leggur fram breytingartillögu þannig að stakt gjald verði 1.600 og gjald fyrir afnot af þvottavél verði 1.000
Forseti ber breytingartillögunar til atkvæða.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1902036 2
6. Náttúrustofa Vestfjarða - samningur um rekstur Náttúrustofu Vestfjarða
Lagður fram samingur milli Bolungarvíkurkaupstaðar, Ísafjarðarbæjar, Strandabyggðar, Súðavíkurhrepps, Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar annars vegar og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins hins vegar um rekstur Náttúrustofu Vestfjarða.
Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn fyrir hönd Vesturbyggðar.
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1902071
Fundargerð
7.
Bæjarráð - 861
Fundargerð 861. fundar bæjarráðs sem haldinn var 29. janúar. Fundargerðin er í 1 lið.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1901010F
8.
Bæjarráð - 862
Fundargerð 862. fundar bæjarráðs sem haldinn var 29. janúar. Fundargerðin er í 18 liðum.
Til máls tóku: Forseti, MÓÓ, GE og MJ.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
- 8.1. #1901058 – Araklettur - skipan starfshóps
- 8.2. #1901049 – Aðilaskipti í verkefni vegna fjarheilbrigðisþjónustu - Fjóðrungssamband Vestfirðinga
- 8.3. #1812001 – Könnun um nöfn á nýbýlum og breytingar á nöfnum býla
- 8.4. #1901042 – Sirkushátíð í bæjarfélagi - Sirkus Íslands, Alda Brynja Birgisdóttir
- 8.5. #1901059 – Norræna félagið - beiðni um styrk
- 8.6. #1901048 – Greining á þörf fyrir hjúkrunarrými - Heilbr.st. Vestfjarða
- 8.7. #1901036 – Skýrsla eldvarnaerftirlits vegna Patreksskóla, efra húsnæði - Slökkvilið VB
- 8.8. #1901041 – Skýrsla vegna eftirlits í Bíldudalsskóla - Slökkvilið Vesturbyggðar
- 8.9. #1901039 – Skýrsla eldvarnaeftirlits vegna leikskólans Arakletts - Slökkvilið Vesturbyggðar
- 8.10. #1901022 – Sveitastjórnarþing Evrópuráðsins - Samband Íslenskra sveitarfélaga
- 8.11. #1901050 – Ósk um umsögn um frumvarp til laga um ákvæði tilskpunar ESB 201461 - Samöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
- 8.12. #1809015 – Tálknafjörður - Patreksfjörður - morgunferðir
- 8.13. #1901044 – Menningarleg verk í Baldurshaga Bíldudal - Jón Kr. Ólafsson
- 8.14. #1901037 – Styrkumsókn - Félag áhugamanna um skrímslasetur
- 8.15. #1901057 – Fimleikafélag Vestfjarða - beiðni um stuðning
- 8.16. #1901029 – Jólaball 2018, niðurfelling á húsaleigu - Kvenfélagið Sif og Lionsklúbbur Patrekfjarðar
- 8.17. #1809048 – Húsnæðismál á landsbyggðinni - tilraunaverkefni
- 8.18. #1901056 – Nemendur FSN - ósk um aðstöðu í Vest-End
Málsnúmer 1901011F
9.
Bæjarráð - 863
Fundargerð 863. fundar bæjarráðs sem haldinn var 12. febrúar. Fundargerðin er í 22 liðum.
Til máls tóku: Forseti, ÁS, MÓÓ, GE, bæjarstjóri og MJ.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
- 9.1. #1902005 – Reglugerð um húsnæðisáætlanir - Íbúðalánasjóður
- 9.2. #1901059 – Norræna félagið - beiðni um styrk
- 9.3. #1811138 – Karlar í skúrnum - verkefni Rauða krossins
- 9.4. #1902036 – Tjaldstæði
- 9.5. #1811002 – Skipurit Vesturbyggð
- 9.6. #1901006 – Niðurfelling Barðastrandavegar 2-07 - Vegagerðin
- 9.7. #1902023 – Söfnun upplýsinga um laus störf á íslensku vinnumarkaði - Hagstofa Íslands
- 9.8. #1902029 – Ósk um umsögn um þingsályktunartillögu um heilbrigðistefnu til ársins 2030, 509. mál. - Velferðarnefnd Alþingis
- 9.9. #1902003 – Ósk um umsögn á tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í íslensku samfélagi, 274. mál. - Velferðarnefnd Alþingis
- 9.10. #1902042 – Slökkviliðsstjóri - minniblað um verkefni slökkviliðsstjóra
- 9.11. #1901063 – FOR19010258 Sveitarfélögin og heimsmarkmiðin - Forsætisráðuneytið
- 9.12. #1902002 – Málefni aldraðra - frumvarp til laga
- 9.13. #1902006 – Erindi um ráðgjöf um skemmri vinnuviku og dýpkun lýðræðisins - Alda Lýðræðisfélag
- 9.14. #1902001 – Fundargerð nr. 867 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
- 9.15. #1901062 – Viðmið um tekjur og eignir í reglum sveitarfélaga um úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði - SÍS
- 9.16. #1902022 – Styrkur til tónleikahalds - Kirkjukórar Patreksfjarðar og Bíldudals - Patreksfjarðarkirkja
- 9.17. #1902007 – Umsagnarbeiðni um aukna framleiðslu á laxi í Patreksfirði og Tálknafirði um 14.500 tonn - Skipulagsstofnun
- 9.18. #1902017 – Rafstöðin - Framkvæmdaleyfisgjöld
- 9.19. #1902004 – Ósk um umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitastjórna, 356. mál - Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis
- 9.20. #1902033 – Framkvæmdaráð Umhverfisvottunar sveitarfélaga á Vestfjörðum - ósk um skipun
- 9.21. #1901055 – Fjallskil - kostnaður
- 9.22. #1901034 – Skólaakstur
Málsnúmer 1902001F
10.
Menningar- og ferðamálaráð - 3
Fundargerð 3. fundar menningar- og ferðamálaráðs sem haldinn var 12. febrúar. Fundargerðin er í 5 liðum.
Fundargerðin lögð fram til kynnningar.
- 10.1. #1812036 – Beiðni um samstarf á árinu 2019
- 10.2. #1901042 – Sirkushátíð í bæjarfélagi - Sirkus Íslands, Alda Brynja Birgisdóttir
- 10.3. #1901044 – Menningarleg verk í Baldurshaga Bíldudal - Jón Kr. Ólafsson
- 10.4. #1901037 – Styrkumsókn - Félag áhugamanna um skrímslasetur
- 10.5. #1902025 – Ábending vegna Látrabjargs
Málsnúmer 1901006F
11.
Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar - 18
Fundargerð 18. fundar fjallskilanefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps sem haldinn var 29. janúar. Fundargerðin er í 2 liðum.
Dagskrárliður 1 á fundi nefndarinnar var tekin fyrir á 863. fundi bæjarráðs, þar sem lögð var fram bókun fjallskilanefndar vegna fjallskilakostnaðar fyrir árið 2018. Afgreiðslu málsins var frestað og hefur ekki verið lokið.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1901009F
12.
Skipulags og umhverfisráð - 56
Fundargerð 56. fundar skipulags- og umhverfisráðs sem haldinn var 18. febrúar. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri, GE.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
- 12.1. #1901030 – Skilti - Vatnsfjörður - friðland - ósk um leyfi til uppsetningar
- 12.2. #1812019 – Vestfjarðavegur um Dynjandisheiði, mat á umhverfisáhrifum.
- 12.3. #1812006 – Samstarf 2018 - Veraldarvinir
- 12.4. #1902044 – Auðshaugur. Umsókn um stofnun lóðar.
- 12.5. #1902043 – Auðnar. Umsókn um byggingarleyfi
- 12.6. #1902007 – Umsagnarbeiðni um aukna framleiðslu á laxi í Patreksfirði og Tálknafirði um 14.500 tonn - Skipulagsstofnun
Málsnúmer 1902005F
13.
Hafna- og atvinnumálaráð - 5
Fundargerð 5. fundar hafna- og atvinnumálaráðs sem haldinn var 18. febrúar. Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tóku: Forseti, MÓÓ, GE, bæjarstjóri, ÁS og JG.
Fundargerð lögð fram til kynningar
- 13.1. #1811138 – Karlar í skúrnum - verkefni Rauða krossins
- 13.2. #1811001 – Hafnarteigur 4. Umsókn um byggingarleyfi, matshl 05.
- 13.3. #1902049 – Hafnarteigur 4. Landfylling, stækkun til austurs.
- 13.4. #1810045 – Hreinsunarátak í Vesturbyggð
- 13.5. #1902053 – Löndunarkrani - staðsetning á nýjum krana
- 13.6. #1902007 – Umsagnarbeiðni um aukna framleiðslu á laxi í Patreksfirði og Tálknafirði um 14.500 tonn - Skipulagsstofnun
- 13.7. #1902054 – Gjald vegna nýtingar eldissvæða í sjó - frumvarp til laga
Bæjarstjórn Vesturbyggðar leggur fram eftirfarandi bókun: Bæjarstjórn Vesturbyggðar vill árétta vegna frumvarpsdraga sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um gjald vegna nýtingar eldissvæða í sjó þá ófrávíkjanlegu kröfu að gjald vegna nýtingar eldissvæða í sjó skuli renna óskipt til þeirra sveitarfélaga sem taka á sig kostnað vegna uppbyggingar innviða og fjölbreyttara atvinnulífs. Tekjustofnar sveitarfélaga eru takmarkaðir og því mikilvægt að gjöld sem þessi renni til sveitarfélaganna þar sem nýting auðlindarinnar og starfsemi fyrirtækja í fiskeldi fer fram og þörfin til eflingar þjónustu er mest.
- 13.8. #1810030 – Byggðakvóti - Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið - Auglýsing umsóknar um byggðarkvóta fiskveiðiársins 2018-19
- 13.9. #1901064 – Fundargerð stjórnar nr. 409 - Hafnarsamband Íslands
Málsnúmer 1902002F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:34
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 331. fundar miðvikudaginn 20. febrúar 2019 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Guðrún Eggertsdóttir sat fundinn í fjarveru Friðbjargar Matthíasdóttur og Jörundur Garðarsson sat fundinn í fjarveru Jóns Árnasonar.
Forseti bæjarstjórnar Iða Marsibil Jónsdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.