Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 20. júní 2018 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu
- Arnheiður Jónsdóttir (AJ) starfandi bæjarstjóri
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) forseti
- Jörundur Garðarsson (JG) varamaður
- Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
- María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
- Ramon Flavià Piera (RFP) varamaður
Fundargerð ritaði
- Davíð Rúnar Gunnarsson
Fundargerð
1.
Bæjarstjórn - 322
Forseti óskaði eftir afbrigði þannig að nýr dagskrárliður bætist við dagskrá fundarins sem 1. töluliður Fundagerð Bæjarstjórnar númer 322 lögð fram til kynningar og aðir liðir færast þá aftar sem því nemur.
Afbrigðið samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
- 1.1. #1804004F – Bæjarstjórn - 321
- 1.2. #1805001F – Bæjarráð - 834
- 1.3. #1805007F – Bæjarráð - 835
- 1.4. #1805008F – Fræðslu og æskulýðsráð - 42
- 1.5. #1805002F – Hafnarstjórn - 159
- 1.6. #1805006F – Skipulags og umhverfisráð - 47
- 1.7. #1805021 – Sveitarstjórnarkosningar 2018 - kjörskrá.
Málsnúmer 1805003F
2.
Bæjarstjórn - 323
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Til máls tók: forseti
- 2.1. #1806003 – Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir.
- 2.2. #1806008 – Vesturbyggð - ráðning nýs bæjarstjóra.
- 2.3. #1806009 – Vesturbyggð - staðgengill bæjarstjóra.
Málsnúmer 1805004F
3.
Bæjarráð - 836
Fundargerð í 4 töluliðum.
Til máls tóku: forseti, ÁS
Liður 1. í fundagerð - vísað til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
Liður 2. í fundagerð Lögreglusamþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir lögreglusamþykktina og vísar henni til annarrar umræðu.
- 3.1. #1804001 – Rekstur og fjárhagsstaða 2018.
- 3.2. #1805031 – Vesturbyggð - lögreglusamþykkt.
- 3.3. #1805009 – Sýslumaðurinn á Vestfjörðum - umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi.
- 3.4. #1805027 – Stekkaból ehf - Umsagnarbeiðni og umsólkn um rekstarleyfi í flokki 2 fyrir Stekka 14 og 21
Málsnúmer 1805009F
4.
Bæjarráð - 837
Fundargerð í 9 töluliðum
Oddviti minnihluta leggur fram eftirfarandi tillögu:
Fulltrúar á landsþingi Sambands íslenskra Sveitarfélaga verði skipaðir bæði frá minnihluta og meirihluta í ljósi þess að nú á sveitarfélagið tvo aðalfulltrúa vegna fjölgunar í sveitarfélaginu.
Tillagan var borin upp og samþykkt samhljóða.
Forseti leggur til að fulltrúar á landsþingi Sambands Íslenskra Sveitarfélaga verði
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir
Friðbjörg Matthíasdóttir
til vara
María Ósk Óskarsdóttir
Ásgeir Sveinsson
Til máls tóku: forseti, FM,
- 4.1. #1806004 – Ósk um uppýsingar hvort hægt sé að kaupa Hliðskjálf
- 4.2. #1804023 – Aron Ingi Guðmundsson - Verbúðin og vínveitingaleyfi
- 4.3. #1804015 – Skipulagsstofnun - Beiðni um umsögn á frummatskýrslu um framleiðslu á 4000 tonnum af laxi í kynslóðaskiptu eldi í Arnarfirði
- 4.4. #1801038 – Samband íslenskra sveitarfélaga - skyldur sveitafélagsins vegna akstursþjónustu.
- 4.5. #1806014 – Íslensk orkumiðlun - Fyrirspurn um raforkukaup
- 4.6. #1806012 – Samband íslenskra sveitarfélaga - Kostning fulltrúa á landsþing SÍS 2018-2022
- 4.7. #1806005 – Landskerfi bókasafna - Skýrsla og fundargerð aðalfundar Landskerfa
- 4.8. #1806006 – Jafnréttisstofa - Skyldur sveitafélaga samkvæmt jafnréttislögum
- 4.9. #1805038 – Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands - Aldarafmæli
Málsnúmer 1806001F
5.
Skipulags og umhverfisráð - 48
Fundargerðin er í 3. töluliðum.
- 5.1. #1708013 – Deiliskipulag - Hvesta Arnarfirði
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagið samhljóða. Tillagan verði auglýst samkv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og sendar til umsagnaraðilila.
- 5.2. #1806002 – Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna strengfærslu, Bíldudal.
Bæjarstjórn samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar skriflegt samþykki sóknarnefndar og jákvæð umsögn Minjavarðar liggi fyrir. Skipulags- og umhverfisráð telur að framkvæmdin sé minniháttar. Einnig kallar ráðið eftir uppmælingu af legu strengsins í heild þegar framkvæmd er lokið, sem og ítarlegri uppdráttum af framkvæmdinni.
- 5.3. #1806001 – Umsókn um stækkun lóðar við Arnarholt, Barðaströnd.
Bæjarstjórn samþykkir stækkun lóðarinnar með fyrirvara um grenndarkynningu og felur skipulagsfulltrúa að undirbúa grenndarkynningu. Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1806003F
Almenn erindi
6. Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir.
Kosið í ráð og nefndir skv. Samþykktum um stjórn Vesturbyggðar
Skipulags - og umhverfisráð:
Barði Sæmundsson
Jón Garðar Jörundsson
Jóhann Pétur Ágústsson
Friðbjörg Matthíasdóttir
Jóhanna Gísladóttir
Til vara:
Kristján Finnbogason
Véný Guðmundsdóttir
María Ósk Óskarsdóttir
Gunnar Sean Eggertsson
Ragna Jenný Friðriksdóttir
Samþykkt samhljóða.
Fræðslu- og æskulýðsráð:
Jónas Heiðar Birgisson
Guðrún Eggertsdóttir
Davíð Þorgils Valgeirsson
Petrína Sigrún Helgadóttir
Ragna Berglind Jónsdóttir
Til vara:
Elín Eyjólfsdóttir
Birta Eik Fanneyjar Óskarsdóttir
Guðbjartur Gísli Egilsson
Zane Kauzena
Sædís Eiríksdóttir
Samþykkt samhljóða.
Velferðarráð:
Lilja Sigurðardóttir
Bergrún Halldórsdóttir
Kristín Brynja Gunnarsdóttir
Til vara:
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir
Véný Guðmundsdóttir
Heba Harðardóttir
Samþykkt samhljóða.
Yfirkjörstjórn í Vesturbyggð:
Finnbjörn Bjarnason
Ólafur Steingrímsson
Rafn Hafliðason
Varamenn:
Hrafnhildur Bára Erlingsdóttir
Geir Gestsson
Bríet Arnardóttir
Samþykkt samhljóða.
Undirkjörstjórn Patreksfirði:
Karólína G. Jónsdóttir
Hrönn Árnadóttir
Þóra Sjöfn Kristinsdóttir
Varamenn:
Sigríður Erlingsdóttir
Eiður Thoroddsen
Anna Stefanía Einarsdóttir
Samþykkt samhljóða.
Undirkjörstjórn Bíldudal:
Heba Harðardóttir
Ólafía Björnsdóttir
Hannes Friðriksson
Varamenn:
Margrét Hjartardóttir
Valgerður Jónasdóttir
Guðmundur Valgeir Magnússon
Samþykkt samhljóða.
Undirkjörstjórn Barðaströnd:
Barði Sveinsson
María Úlfarsdóttir
Silja Björg Ísafoldardóttir
Varamenn:
Jakob Pálsson
Rósa Ívarsdóttir
Gísli Á. Gíslason
Samþykkt samhljóða.
Fasteignir Vesturbyggðar:
Egill Össurarson
Guðný Sigurðardóttir
Jónas Heiðar Birgisson
Til vara;
Jón Árnason
Friðbjörg Matthíasdóttir
María Ósk Óskarsdóttir
Samþykkt samhljóða.
Vesturbotn:
Sigurður Viggósson
Arnheiður Jónsdóttir
Hjörtur Sigurðsson
Til vara:
Magnús Jónsson
Guðrún Bergmann Leifdóttir
Barði Sæmundsson
Samþykkt samhljóða.
Fjallskilanefnd:
Ásgeir Sveinsson
Sveinn Eyjólfur Tryggvason
Til vara:
Guðbjartur Gísli Egilsson
Ólafur Helgi Haraldsson
Samþykkt samhljóða.
Almannavarnanefnd:
Starfandi bæjarstjóri
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1806003 4
7. Breyting á samþykktum Vesturbyggðar
Forseti óskar eftir afbrigði af dagskrá og sett verði inn liðurinn, breyting á samþykktum Vesturbyggðar verði sá liður númer 7 á dagskrá.
Samþykkt samhljóða.
Forseti ber undir bæjarstjórnina til fyrstu umræðu að grein 46 í samþykktum Vesturbyggðar verði breytt á eftirfarandi hátt: Að hafnanefnd verði hafna- og atvinnumálanefnd og verði skipuð 5 nefndarmönnum.
Bæjarstjórn leggur til að eftirfarandi aðilar skipi nefndina að breytingu lokinni:
Jörundur Garðarson
Guðrún Anna Finnbogadóttir
Valgerður Ingvadóttir
Gísli Ægir Ágústsson
Magnús Jónsson
Til vara:
Óskar Gíslason
Iða Marsibil Jónsdóttir
Marteinn Þór Ásgeirsson
Valdimar Bernódus Ottósson
Petrína Sigrún Helgadóttir
Samþykkt samhljóða.
Að atvinnu- og menningarráð verði menningar- og ferðamálaráð og verði skipuð 5 nefndarmönnum.
Bæjarstjórn leggur til að eftirfarandi aðilar skipi ráðið að breytingu lokinni:
María Ósk Óskarsdóttir
Gunnþórunn Bender
Ramon Flavià Piera
Ragna Jenný Friðriksdóttir
Svava Gunnarsdóttir
Til vara:
Aron Ingi Guðmundsson
Ester Gunnarsdóttir
Óskar Leifur Arnarson
María Ragnarsdóttir
Hjörtur Sigurðsson
Í samþykktum sveitarfélagsins komi í stað þjónustuhóps aldraðra, öldrunarráð skv. nýjum lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Í ljósi þess að verið er að leggja til breytingu á samþykktum sveitarfélagsins, leggur forseti til að þessum lið verði vísað til annarrar umræðu á auka fundi bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1806019 2
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00