Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 30. ágúst 2017 og hófst hann kl. 17:00
Fundargerð ritaði
- Þórir Sveinsson skrifstofustjóri
Fundargerðir til kynningar
1. Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar - 14
8. Skipulags og umhverfisráð - 36
Fundargerðin er í 7. töluliðum.
Til máls tók: Forseti.
7.tölul. Þorgerður Einarsdóttir. Aðalstræti 131 - nýbygging. Bæjarstjórn fagnar byggingu íbúðarhúsnæðis við Aðalstræti 131, Patreksfirði, en nýbyggingin er sú fyrsta á Patreksfirði í mörg ár.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
- 8.1. #1704006 – Arnarlax umsókn um leyfi til viðbyggingar við Strandgötu 1 Bíldudal
- 8.2. #1702056 – Heimabær 1, lóð 1. Ósk um skiptingu lands.
Umsókn um skiptingu lóðar er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Gera þarf óverulega breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarskipta. Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkir erindið.
- 8.3. #1707029 – Penna ehf. Umsókn um byggingarleyfi - Hótel Flókalundur
Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn Umhverfisstofnunar sem og landeigenda. Sótt verði um undanþágu um gerð deiliskipulags skv. 1. gr bráðabirgðaákvæða skipulagslaga nr.123/2010 og skv. gr. 5.11.2 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013
- 8.4. #1707028 – Sýslumaðurinn á Vestfjörðum - Hænuvík
- 8.5. #1707030 – Bíldudalsskóli. Umsókn um byggingarleyfi.
- 8.6. #1701012 – Rekstur og fjárhagsstaða 2017.
- 8.7. #1707031 – Þorgerður Einarsdóttir. Aðalstræti 131, umsókn um byggingarleyfi.
Málsnúmer 1707005F 2
9. Fræðslu og æskulýðsráð - 35
Fundargerðin er í 2. töluliðum.
Til máls tók: Forseti.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
- 9.1. #1704025 – Staða skólastjóra Leikskóla Vesturbyggðar
Alls sóttu 5 einstaklingar um starfið. Attendus vann hæfnisgreiningu umsækjenda fyrir Vesturbyggð og var þremur umsækjendum boðið í viðtal. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.Viðtöl voru tekin við tvo umsækjendur um stöðu leikskólastjóra við Araklett á Patreksfirði. Bæjarráð staðfestir ráðningu á Hallveigu Ingimarsdóttur, sem leikskólastjóra við leikskólann Araklett á Patreksfirði.
- 9.2. #1706004 – Opnunartími á leikskólanum Arakletti.
Málsnúmer 1707004F 2
11. Bæjarráð - 808
Fundargerðin er í 4. töluliðum.
Til máls tóku: Forseti og HS.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1708004F
12. Bæjarráð - 807
Fundargerðin er í 11. töluliðum.
Til máls tóku: Bæjarstjóri, HS og forseti.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1708001F
13. Bæjarráð - 806
Fundargerðin er í 6. töluliðum.
Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri, verkefnastjóri samfélagsuppbyggingar, GBS og HT.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1707007F
14. Bæjarráð - 805
Fundargerðin er í 10. töluliðum.
Til máls tóku: NÁJ, bæjarstjóri, skrifstofustjóri, forseti og HS.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1707001F
15. Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 49
Fundargerðin er í 5. töluliðum.
Til máls tóku: HT, forseti, GÆÁ, NÁJ og bæjarstjóri.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
- 15.1. #1703043 – Minjasafnið á Hnjóti
- 15.2. #1705050 – Íþróttafulltrúi Vesturbyggðar og HHF - úttektarskýrsla.
- 15.3. #1609032 – Samstarfssamningur um almenningssamgöngur
- 15.4. #1609050 – Styrktarsjóður heilbrigðisstofnunar V-Barð
- 15.5. #1609051 – Önnur mál
Málsnúmer 1707002F 2
16. Vestur-Botn - Aðalfundur
17. Fasteignir Vesturbyggðar - 64
Fundargerðin er í 5. töluliðum.
Til máls tóku: HT og bæjarstjóri.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1705001F
Fundargerðir til staðfestingar
2. Skipulags og umhverfisráð - 37
Fundargerðin er í 6. töluliðum.
Til máls tóku: Bæjarstjóri og GÆÁ.
3.tölul.: Vegagerðin - tillögur fyrir Vestfjarðaveg um Dynjandisheiði og Bíldudalsveg. Bæjarstjórn tekur undir bókun skipulags- og umhverfisráðs að matsáætlun fyrir Vestfjarðaveg 60 um Dynjandisheiði og Bíldudalsveg 63 verði skipt upp í þrjá hluta.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1707009F
3. Hafnarstjórn - 154
Fundargerðin er í 5. töluliðum.
Til máls tóku: Bæjarstjóri og forseti.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1707008F
5. Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar - 16
7. Bæjarráð - 809
Fundargerðin er í 3. töluliðum.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
1.tölul.: Fiskeldisnám og rannsóknir. Bæjarstjórn vísar fjármögnun á hluta sveitarfélagsins í verkefninu á næsta ári til gerðar fjárhagsáætlunar 2018.
2.tölul.: Vesturbyggð - endurskoðun á aðalskipulagi. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna um vinnuhópa vegna vinnu við endurskoðun aðalskipulags fyrir Vesturbyggð.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1708006F
Fundargerð
4.
Atvinnu og menningarráð - 16
Fundargerðin er í 4. töluliðum.
Til máls tók: Forseti.
4.tölul. Vestfjarðavegur 60. Bæjarstjórn skorar á Alþingi að höggva nú þegar á þann hnút sem staða vegalagningar um Vestfjarðaveg 60 er í, með lagasetningu. Það er ekki samboðið nútíma samfélagi að standa í vegi fyrir uppbyggingu atvinnulífs í heilum landsfjórðungi.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1707006F
6.
Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar - 15
Fundargerðin er í 3. töluliðum.
Til máls tóku: Forseti og NÁJ.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1705005F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:12