Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 23. nóvember 2016 og hófst hann kl. 17:00
Fundargerð ritaði
- Þórir Sveinsson skrifstofustjóri
Fundargerð
1.
Bæjarstjórn - 301
2.
Fasteignir Vesturbyggðar - 61
Fundargerðin er í 1. tölulið.
Til máls tók: Forseti.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1610007F
Fundargerðir til staðfestingar
4. Bæjarráð - 780
Fundargerðin er í 7. töluliðum.
Til máls tóku: Forseti og HT
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1610009F
6. Bæjarráð - 782
Fundargerðin er í 18. töluliðum.
Til máls tóku: ÁS og forseti.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1611002F
10. Bæjarráð - 786
11. Hafnarstjórn - 146
Fundargerðin er í 13. töluliðum.
Til máls tóku: Forseti, ÁS, MJ og HS.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1610010F
12. Fræðslu og æskulýðsráð - 28
13. Atvinnu og menningarráð - 11
Fundargerðin er í 4 töluliðum.
Til máls tóku: Forseti og HS.
1.tölul. Bæjarstjórn tekur undir bókun atvinnu- og menningarráðs og mótmælir því að byggðakvóti Vesturbyggðar sé skertur um 73 tonn frá fyrra fiskveiðiári.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1611005F
14. Skipulags og umhverfisráð - 27
Fundargerðin er í 5. töluliðum.
Til máls tók: Forseti.
3.tölul. Sigurður Bergsteinsson? umsókn um lóðaleigusamning, Vatnskrókur 24 ? 1611037.
Lagt fram erindi frá Sigurði Bergsteinssyni eigenda Vatnskróks 24, Patreksfirði. Í erindinu er sótt um lóð undir geymsluna, en enginn lóðaleigusamningur er í gildi.
Bæjarstjórnar samþykkir útleigu lóðar undir Vatnskrók 24, Patreksfirði og felur forstm. tæknideildar að gefa lóðarleigusamning út.
4.tölul. Helgi Auðunsson? umsókn um lóðaleigusamning, Vatnskrókur 22 ? 1611036.
Lagt fram erindi frá Helga Auðunssyni eigenda Vatnskróks 22, Patreksfirði. Í erindinu er sótt um lóð undir geymsluna, en enginn lóðaleigusamningur er í gildi.
Bæjarstjórnar samþykkir útleigu lóðar undir Vatnskrók 22, Patreksfirði og felur forstm. tæknideildar að gefa lóðarleigusamning út.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1609010F 2
Almenn erindi
15. Fjárhagsáætlun 2017.
Lagt fram frumvarp að fjárhagsáætlun Vesturbyggðar og stofnana fyrir árið 2017, 4ra ára áætlun 2017-2020, álagning skatta og þjónustugjaldskrár, reglur um niðurfellingu fasteignagjalda á árinu 2017 til ellilífeyrisþega og öryrkja og styrki til félagasamtaka vegna menningar-, björgunar- eða íþróttastarfsemi til greiðslu fasteignaskatts og fráveitugjalds.
Til máls tóku: Forseti og skrifstofustjóri.
Bæjarstjórn leggur til eftirfarandi gjaldastuðla á árinu 2017:
Útsvarshlutfall 14,52%
Fasteignaskattur A-flokkur 0,500%
Fasteignaskattur B-flokkur 1,320%
Fasteignaskattur C-flokkur 1,650%
Vatnsgjald ? íbúðarhúsnæði 0,450%
Vatnsgjald ? annað húsnæði 0,500%
Fráveitugjald 0,400%
Lóðaleiga 3,750%
Sorphreinsigjald ? íbúðarhúsnæði 19.600 kr. á grátunnu
Sorphreinsigjald ? íbúðarhúsnæði 7.250 kr. á blátunnu
Sorpeyðingargjald ? íbúðarhúsnæði 30.950 kr. á tunnu
Sumarhús ? sorpeyðingargjald 30.950 kr.
Lögbýli ? sorpeyðingargjald 49.450 kr.
Umhverfisgjald á lögaðila flokkun samkv. gjaldskrá.
Forseti lét bóka: Breytingartillögum við seinni umræðu verði skilað inn til bæjarskrifstofu fyrir kl. 12.00 föstudaginn 2. desember nk.
Bæjarstjórn vísar frumvarpi að fjárhagsáætlun 2017 og 4ra ára áætlun 2017-2020 til seinni umræðu sem verður miðvikudaginn 7. desember nk.
Málsnúmer 1608011 15
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00