Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 20. júlí 2017 og hófst hann kl. 09:00
Fundargerð ritaði
- Friðbjörg Matthíasdóttir bæjarstjóri
Almenn erindi
1. Rekstur og fjárhagsstaða 2017.
Lagt fram yfirlit rekstrar frá janúar - maí. Forstöðumaður tæknideildar sat fundinn undir þessum lið og fór yfir framkvæmdir sumarsins.
Málsnúmer 1701012 19
2. Samstarfssamningur um almenningssamgöngur
Lögð fram gögn vegna útboðs á almenningssamgöngum í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi. Ákvörðun bæjarráð í tölvupósti, frá 14.07.2017, um að heimila útboð staðfest.
Málsnúmer 1609032 6
Fundargerðir til staðfestingar
3. Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar - 14
4. Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 49
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
- 4.1. #1703043 – Minjasafnið á Hnjóti
- 4.2. #1705050 – Íþróttafulltrúi Vesturbyggðar og HHF - úttektarskýrsla.
- 4.3. #1609032 – Samstarfssamningur um almenningssamgöngur
- 4.4. #1609050 – Styrktarsjóður heilbrigðisstofnunar V-Barð
- 4.5. #1609051 – Önnur mál
Málsnúmer 1707002F 2
5. Fræðslu og æskulýðsráð - 35
Fundargerðin samþykkt samhljóða, með bókun við 1. lið fundargerðar.
- 5.1. #1704025 – Staða skólastjóra Leikskóla Vesturbyggðar
Alls sóttu 5 einstaklingar um starfið. Attendus vann hæfnisgreiningu umsækjenda fyrir Vesturbyggð og var þremur umsækjendum boðið í viðtal. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.Viðtöl voru tekin við tvo umsækjendur um stöðu leikskólastjóra við Araklett á Patreksfirði. Bæjarráð staðfestir ráðningu á Hallveigu Ingimarsdóttur, sem leikskólastjóra við leikskólann Araklett á Patreksfirði.
- 5.2. #1706004 – Opnunartími á leikskólanum Arakletti.
Málsnúmer 1707004F 2
6. Skipulags og umhverfisráð - 36
Fundargerðin samþykkt samhljóða, með bókun við 2. og 3. lið dagskrár.
- 6.1. #1704006 – Arnarlax umsókn um leyfi til viðbyggingar við Strandgötu 1 Bíldudal
- 6.2. #1702056 – Heimabær 1, lóð 1. Ósk um skiptingu lands.
Umsókn um skiptingu lóðar er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Gera þarf óverulega breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarskipta. Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkir erindið.
- 6.3. #1707029 – Penna ehf. Umsókn um byggingarleyfi - Hótel Flókalundur
Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn Umhverfisstofnunar sem og landeigenda. Sótt verði um undanþágu um gerð deiliskipulags skv. 1. gr bráðabirgðaákvæða skipulagslaga nr.123/2010 og skv. gr. 5.11.2 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013
- 6.4. #1707028 – Sýslumaðurinn á Vestfjörðum - Hænuvík
- 6.5. #1707030 – Bíldudalsskóli. Umsókn um byggingarleyfi.
- 6.6. #1701012 – Rekstur og fjárhagsstaða 2017.
- 6.7. #1707031 – Þorgerður Einarsdóttir. Aðalstræti 131, umsókn um byggingarleyfi.
Málsnúmer 1707005F 2
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:20