Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 10. nóvember 2015 og hófst hann kl. 13:30
Fundargerð ritaði
- Þórir Sveinsson skrifstofustjóri
Almenn erindi
1. Landgræðsla ríkisins beiðni um styrk "Bændur græða landið" 2015
Lagt fram bréf dags. 2. nóvember sl. frá Landgræðslu ríkisins með beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins "Bændur græða landið" á árinu 2015.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Málsnúmer 1511012
2. Snorraverkefnið 2016 styrkbeiðni
Lagt fram bréf dags. 30. október sl. frá Ástu S. Kristjánsdóttur f.h. stjórnar Snorraverkefnisins með beiðni um stuðning við Snorraverkefnið 2016.
Bæjarráð sér sér ekki færð að styrkja verkefni að þessu sinni.
Málsnúmer 1511013
3. Umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016
Lagt fram bréf dags. 20. október 2015 frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu varðandi umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016.
Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkir samhljóða að við úthlutun byggðakvóta í Vesturbyggð (Patreksfjörður og Brjánslækjarhöfn) þá verði farið eftir reglugerð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins nr. 605/2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015-2016 með eftirfarandi breytingum:
- Brjánslækjarhöfn:
1. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega, af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2014 til 31. ágúst 2015.
2. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.
- Patrekshöfn
Magnús Jónsson og Ásthildur Sturludóttir tóku ekki þátt í afgreiðslu málsins undir þessum málslið dagskrár og viku af fundi.
Bæjarráð gerir engar breytingar á reglugerðinni, nr. 605/2015.
- Bíldudalshöfn
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um frest til ráðuneytisins til 1. desember nk. um sérreglur varðandi úthlutun byggðakvóta á Bíldudal.
Málsnúmer 1510082 6
4. Fjárhagsáætlun 2016
Rætt um vinnuna við gerð fjárhagsáæltunar 2016.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun 2016 verður miðvikudaginn 25. nóvember nk. og seinni umræða miðvikudaginn 9. desember nk.
Málsnúmer 1507059 13
Til kynningar
5. Nave - Þáttur ríkisfjárlaga í Náttúrustofu Vestfjarða
Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum dags. 12. otkóber sl. frá Náttúrustofu Vestfjarða með upplýsingum um þátt ríkisfjárlaga í NAVE.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1510052
6. NAVE eigendafundur aðildarfélaga 04.11.15
Lögð fram fundargerði eigendafundar Náttúrustofu Vestfjarða (NAVE) haldinn á Hólmavík 4. nóvember sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1511017
7. NAVE fundargerð stjórnar nr.96
Lögð fram fundargerð 96. fundar stjórnar NAVE frá 19. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1511014
8. NAVE fundargerð stjórnar nr.97
Lögð fram fundargerð 97. fundar stjórnar NAVE frá 24. september sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1511015
9. NAVE fundargerð stjórnar nr.98
Lögð fram fundargerð 98. fundar stjórnar NAVE frá 3. nóvember sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1511016
10. Breiðafjarðarnefnd fundargerð stjórnar nr.147
Lögð fram fundargerð 147. fundar stjórnar Breiðafjarðarnefndar frá 27. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1511002
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00