Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 30. júlí 2014 og hófst hann kl. 09:00
Fundargerð ritaði
- Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Fundargerðir til kynningar
3. Fjórðungssamband Vestf. fundargerð 15.07.2014
5. NAVE 90. fundur stjórnar 17.07.2014
6. NAVE 91. fundur stjórnar 23.07.2014
Til kynningar
7. Samúelshús Selárdal.
Lagður fram tölvupóstur frá Ólafi Engilbertssyni fh. forsvarsmanna endurbyggingar húsa Samúels Jónssonar í Selárdal þar sem upplýst er um fyrirhugaðar framkvæmdir vegna endurbyggingar húsanna í Selárdal.
Málsnúmer 1407042
12. Starfslýsingar og starfaskipulag
Almenn erindi
4. Málþing sveitarf. um þjónustu við íbúa af erlendum uppruna
Lagt fram erindi um málþing sveitarfélaga um þjónustu íbúa af erlendum uppruna. Bæjarráð samþykkir að fela félagsmálastjóra að vera tengilið fyrir verkefnið.
Málsnúmer 1407041
8. Umsókn um styrk til að halda félagsfund í heimabyggð
Lögð fram umsókn frá Parkinssonssamtökunum um styrk til fundarhalds. Bæjarráð samþykkir að bjóða samtökunum endurgjaldslausa aðstöðu til fundarhalds í Vesturbyggð.
Málsnúmer 1407046
9. Pönk á Patró
Lagt fram erindi frá Pönk á Patró þar sem a) óskað er eftir afnotum af hljóðkerfi sveitarfélagsins og b)leyfi til að halda sundlaugarpartý í Bröttuhlíð.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Málsnúmer 1407035
10. Styrkumsókn
Lögð fram styrkumsókn frá Jörundi Ragnarssyni stuttmyndar hans sem m.a. gerist á Patreksfirði. Bæjarráð samþykkir 50 þúsund króna styrk til verkefnisins.
Málsnúmer 1407062
11. Erindisbréf ráða
13. Grenjavinnsla bréf frá forráðamönnum jarða í "gamla" Rauðasandshreppi
Lagt fram bréf frá Kristni Guðmundssyni fh. forráðamönnum jarða í "gamla" Rauðasandshreppi vegna grenjavinnslu á svæðinu. Bæjarráð vísar málinu til Atvinnuvegaráðs til frekari umfjöllunar.
Málsnúmer 1407003
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00