Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 12. febrúar 2013 og hófst hann kl. 09:00
Fundargerð ritaði
- Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Fundargerðir til staðfestingar
Fundargerðir til kynningar
2. SÍS fundargerð stjórnar nr.803
Lögð fram til kynningar. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 803.
Málsnúmer 1302014
Almenn erindi
3. Saman-hópurinn styrkbeiðni til forvarnarstarfs
Lögð fram styrkbeiðni frá Saman-hópnum til forvarnarstarfs. Styrkbeiðninni hafnað.
Málsnúmer 1302009
4. Breyting á samþykktum NAVE
Framhald frá síðasta fundi. Bæjarráð samþykkir framlagðar samþykktir með fyrirvara um breytingu á 4. tl., 1. mgr er lúta að tímasetningu samráðsfundar aðildarsveitarfélaga á kosningaári.
Málsnúmer 1302005 2
5. Varðandi breytingar á fasteignagjöldum
Framhald frá síðasta fundi.
Lagðar fram samanburðartölur um fasteignagjöld í öðrum sveitarfélögum. Óskað eftir frekari gögnum vegna málsins. Máli frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 1301041 4
8. Vegagerðin ferjan Baldur og viðhald vega í Vb.
Eiður Thoroddsen hjá Vegagerðinni kom inn á fundinn. Rætt um viðhald vega í Vesturbyggð.
Málsnúmer 1204046
Til kynningar
6. Styrkur vegna áningarstaða á Bjargtöngum
Lagt fram til kynningar bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra þar sem tilkynnt er um 1.500 þúsund kr. úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til Vesturbyggðar til fullnaðarhönnunar á áningarstöðum á Bjargtöngum.
Málsnúmer 1302013
7. Ljósnetið á leiðinni
Lagt fram til kynningar bréf frá Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra Símans þar sem tilkynnt er um uppbyggingu Ljósnetsins í Vesturbyggð. Vesturbyggð óskar eftir upplýsingum frá Símanum hvenær til standi að leggja Ljósnetið í dreifbýli Vesturbyggðar.
Málsnúmer 1302015
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00