Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 14. janúar 2013 og hófst hann kl. 09:00
Fundargerð ritaði
- Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Fundargerðir til staðfestingar
1. Bæjarráð - 665
Fundargerð bæjarráðs nr. 665 lögð fram til kynningar.
5. og 6. lið 665. fundar er frestað til næsta fundar bæjarráðs.
Málsnúmer 1212013F
Almenn erindi
2. Langahlíð 18-22
4. Umhverfisstofnun ósk um tilnefningu í ráðgjafanefnd fyrir Látrabjargssvæði
Lagt fram erindi frá Umhverfisstofnun varðandi tilnefningu í ráðgjafanefnd fyrir Látrabjargssvæðið. Bæjarráð Vesturbyggðar tilnefnir:
Ásthildur Sturludóttir
Þröstur Reynisson
Málsnúmer 1301006
5. Sagafjords
Lagt fram erindi frá ATVEST vegna verkefnisins Sagafjords/Ferðumst og fræðumst.
Bæjarráð samþykkir að kanna hvort ferðaskrifstofan Westfjords Adventures hafi áhuga á að taka verkefnið yfir.
Málsnúmer 1301010
7. Vatneyrarbúð
Lögð fram kostnaðaráætlun frá árunum 2004 vegna Vatneyrarbúðar á Patreksfirði.
Bæjarstjóra falið að láta endurvinna kostnaðar-og verkáætlun fyrir Vatneyrarbúð.
Málsnúmer 1301011 2
Til kynningar
3. Svæðisstjórn svæði 6 öryggi íbúa
Lagt fram til kynningar bréf frá svæðisstjórn á svæði 6 þar sem viðraðar eru áhyggjur af öryggi íbúa Barðastrandarsýslu varðandi samgöngu-, orku- og fjarskiptamál.
Málsnúmer 1301009
6. Reglur um menningarstyrki til niðurfellinga fasteignagjalda
Lögð fram drög að reglum að reglum um menningarstyrki til niðurfellinga fasteignagjalda á friðuðum og varðveisluverðum eignum. Frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 1301012
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00