Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 18. desember 2012 og hófst hann kl. 08:30
Fundargerð ritaði
- Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Fundargerðir til staðfestingar
Fundargerðir til kynningar
2. SÍS fundargerð stjórnar nr.801
3. Breiðafjarðarnefnd fundargerð stjórnar nr.127
Almenn erindi
4. Niðurfellingar og afskriftir
Lagður fram niðurskriftarlisti vegna afskrifta og niðurfellinga eldri krafna. Fært í trúnaðarmálabók .
Málsnúmer 1212041 2
5. 10.bekkur umsókn um styrk vegna útskriftarferðar vor 2013
Lögð fram styrkumsókn frá Nínu Ernu Jóhannesdóttir, 190654-3039 vegna útskriftarferðar 10. bekkjar vorið 2013.
Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð 20 þúsund kr. pr. nemanda í 10. bekk Grunnskóla Vesturbyggðar.
Málsnúmer 1212038
6. Fjármálaráðuneyti varðar sameiginlega girðingu í Selárdal
Lagt fram bréf frá Fjármála-og efnahagsráðuneytinu þar sem ráðuneytið upplýsir sveitarfélagið um stöðu mála gagnvart Félagi um listasafn Samúels og fyrirhugaða girðingarvinnu í dalnum. Bæjarráð Vesturbyggðar gerir ekki athugasemd við girðingarvinnuna en leggur áherslu á að hún verði unnið í góðri sátt við þá sem nýta land á svæðinu en sveitarfélagið sér sér ekki fært um að taka þátt í neinum kostnaði við verkefnið.
Málsnúmer 1212023
7. Víðir Hólm varðar nýtingu túna í Selárdal
Lagt fram til kynningar bréf frá Víði Hólm Guðbjartssyni til Atvinnuvegaráðuneytis vegna nýtingu túna í Selárdal.
Málsnúmer 1212021
8. Fjárhagsstaða, desember 2012
Lögð fram fjárhagsstaða fyrstu 11 mánuði ársins 2012 og skuldastaða sveitarfélagsins. Skrifstofustjóri og bæjarstjóri fóru yfir yfirlitið.
Málsnúmer 1212040
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:30