Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 5. júní 2012 og hófst hann kl. 11:30
Fundargerð ritaði
- Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Fundargerðir til staðfestingar
Almenn erindi
2. Fiskistofa:Arnarlax beiðni um rekstrarleyfi fyrir allt að 3000t laxeldi í Arnarfirði.
Lögð fram beiðni um umsögn frá Fiskistofu varðandi umsókn Arnarlaxi um rekstrarleyfi laxeldis í Arnarfirði. Bæjarráð Vesturbyggðar bendir Fiskistofu á að kanna önnur fyrirliggjandi leyfi til nýtingar
auðlinda í Arnarfirði og staðsetningar á þeim og leggur áherslu á að í gangi sé vinna að nýtingaráætlun Arnarfjarðar og nauðsynlegt sé að taka tillit til þess. Að öðru leyti gerir bæjarráð Vesturbyggðar
ekki athugasemd við leyfisumsóknina. Bæjarráð Vesturbyggðar óskar eftir því við hlutaðeigandi stofnanir að þær hraði leyfisveitingum til fiskeldis og bendir jafnframt stjórnvöldum á að hraða gerð
skýrari lagaramma um leyfisveitingar eldismála í heild sinni.
Málsnúmer 1205119
3. Langahlíð, 18 20 og 22 á Bíldudal. Svar við fyrirspurn Vesturbyggðar
Lagt frá svar frá Ofanflóðasjóði við fyrirspurn Vesturbyggðar um nýtingu á Lönguhlíð 18-22 á Bíldudal. Ofanflóðasjóður bendir á aukna hættu ofanflóða í kjölfar á byggingu varnargarðs á Bíldudal fyrir þessi hús. Ofanflóðanefnd er reiðubúin til að taka þátt í flutningi Lönguhlíðar 18 sem er timburhús á aðra lóð og þannig að um heilsársnýtingu verði að ræða á því húsi og húsin að Lönguhlíð 20-22 mætti nýta með ströngum skilyrðum. Varðandi nýtingu húsanna þá þarf samþykki ráðherra. Bæjarstjóra falið að óska eftir samþykki ráðherra fyrir nýtingu Lönguhlíðar 18-22 og kanna með lausar lóðir á Bíldudal áður en ákvörðun um flutning Lönguhlíðar 18 verður tekin.
Málsnúmer 1206002 2
4. Rafmagn í Vestur-Botni
Lagt fram erindi frá Golfklúbbi Patreksfjarðar þar sem óskað er eftir að Vesturbyggðar kanni með lagningu rafmagns að klúbbhúsi í Vestur-Botni. Bæjarstjóra falið að kalla eftir kostnaðaráætlun fyrir verkið og óska jafnframt eftir fundi með stjórn GP vegna málsins.
Málsnúmer 1206003
5. Tilkynning frá Íslandspósti vegna póstþjónustu á Bíldudal
Lagður fram tölvupóstur frá Íslandspósti um breytt fyrirkomulag póstsþjónustu á Bíldudal í kjölfar lokunar á útibúi Landsbankans. Opnunartími verður styttur verulega.
Málsnúmer 1206001
6. Brunabót styrktarsjóður 2012
Lagt fram bréf frá Brunabót varðandi Styrktarsjóð EBÍ 2012. Bæjarstjóra falið að senda inn umsókn vegna vinnu við deiliskipulag á Látrabjargi og undirbúning á stofnun þjóðgarðs.
Málsnúmer 1205131
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30
Friðbjörg Matthíasdóttir boðaði forföll.