Hoppa yfir valmynd

Atvinnu og menningarráð #6

Fundur haldinn í Aðalstræti 75, neðri hæð, 9. nóvember 2015 og hófst hann kl. 16:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Almenn erindi

    1. Umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016

    Lagt fram erindi sem vísað var til atvinnu- og menningarráðs af bæjarráði á 747. fundi þess 27. október sl. með beiðni um umsögn varðandi umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016.
    Atvinnu- og menningarráð mælir með að sömu reglur og giltu fiskveiðiárið 2014/2015 um úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins gildi á fiskveiðiárinu 2015/2016.

      Málsnúmer 1510082 6

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Skipulagsstofnun - Dýrfiskur hf og Fjarðarlax ehf. Eldi á allt að 19.000 tonnum af laxi og regnbogasilungi í Patreksfirði og Tálknafirði - beiðni um umsögn

      Lagt fram erindi sem vísað var til atvinnu- og menningarráðs til kynningar af bæjarráði á 747. fundi þess 27. október sl. varðandi eldi á allt að 19.000 tonnum af laxi og regnbogasilungi í Patreksfirði og Tálknafirði.
      Atvinnu- og menningarráð tekur undir bókun bæjarráðs um mikilvægi þess að opinberar eftirlitsstofnanir sinni hlutverki sínu af alúð í þágu umhverfis og lífríkis sjávar m.a. með því að hafa fasta starfsstöð á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem á landssvæðinu er eitt umfangsmesta sjókvíaeldi í landinu.
      Lagt fram til kynningar.

        Málsnúmer 1510074 2

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Önnur mál

        Mætt til viðræðna við atvinnu- og menningarráð um menningarmál Elsa Reimarsdóttir, félagsmálastjóri.
        Almennt rætt um málefnið og þau verkefni sem eru í gangi hjá sveitarfélaginu.

          Málsnúmer 1501034 6

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00