Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 27. janúar 2015 og hófst hann kl. 16:30
Fundargerð ritaði
- Þórir Sveinsson, skrifstofustjóri
Almenn erindi
1. Patreksdagurinn 2015
Rætt um Patreksdaginn í mars nk. fyrirkomulag hans og dagskrá.
Formanni ásamt fulltrúum í ráðinu og félagsmálafulltrúa falið að semja drög að dagskrá og leggja fyrir næsta fund ráðsins.
Málsnúmer 1501031 2
2. Samþykktir 1. fundar framvinda
Farið yfir framgang og stöðu einstakra mála sem fjallað var um á 1. fundi atvinnu- og menningarráðs 21. október 2014.
Málsnúmer 1501032 2
3. Rækjuveiðar í Arnarfirði
Atvinnu- og menningarráð bendir á að rannsóknir á rækjustofninum í Arnarfirði eru ófullnægjandi, en þær fara fram einu sinni á ári á haustin. Rækjuveiðar eru mikilvægur atvinnuvegur á sunnanverðum Vestfjörðum og skiptir miklu máli fyrir afkomu fjölmargra sjómanna og sveitarfélögin á svæðinu. Nauðsynlegt er að rannsaka stærð og ástand rækjustofnsins að vetri til og fá þannig nákvæmari mælingar á stofninum og veiðiþoli hans.
Málsnúmer 1501033 2
4. Samgöngumál
Atvinnu- og menningarráð bendir á að mikil uppbygging atvinnulífs er nú á sunnanverðum Vestfjörðum m.a. í fiskeldi o.fl. sem kallar á aukna og öruggari flutninga og samgöngubætur í landshlutanum. Þar skiptir sköpum reglubundnar og tíðari ferðir Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, rýmri snjómokstursreglur með hærra þjónustustigi og daglegar flugsamgöngur með hagstæðari tímasetningu og verði.
Málsnúmer 1501035 2
5. Önnur mál
Atvinnu- og menningarráð bendir á að engin refaskytta hefur verið ráðin á ytra svæðið á Barðaströnd og óskar eftir að auglýst verði eftir skyttu fyrir næsta veiðitímabil.
Málsnúmer 1501034 6
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30