Fundur haldinn í fjarfundi, 30. september 2021 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu
- Davíð Rúnar Gunnarsson (DRG)
- Helgi Páll Pálmason (HPP)
- Jónatan Guðbrandsson (JG)
- Karl Ingi Vilbergsson (KIV)
- Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ)
- Rebekka Hilmarsdóttir (RH)
Fundargerð ritaði
- Rebekka Hilmarsdóttir formaður
Almenn erindi
1. Undirbúningur hópslysaáætlunar
Slökkviliðsstjóri fór yfir drög að hópslysaáætlun fyrir sunnanverða Vestfirði. Nefndin fær drögin til yfirlestrar. Lagt til að viðkomandi viðbragðsaðilar yfirfari drögin og skilgreini sitt hlutverk.
Málsnúmer 2104039
2. Grunninnviðir á sunnanverðum Vestfjörðum
Rætt um greinargerð Vestfjarðastofu til átakshóps ráðuneyta um innviðamál frá janúar 2020. Rætt um stöðu innviða á sunnanverðum Vestfjörðum og getu svæðisins til að bregðast við t.d. óveðrum. Formanni falið taka saman upplýsingar fyrir næsta fund nefndarinnar.
Málsnúmer 2001021 3
3. Hópslysaæfing haustið 2021
Rætt um áætlaða hópslysaæfingu en henni hefur verið frestað vegna m.a. Covid-19. Nefndin sammála um að undirbúin verði minni hópslysaæfing.
Málsnúmer 2104040 3
4. Ferju- og sjóslysaáætlun
5. Boðunaráætlanir fyrir sunnanverða Vestfirði
6. Búnaður viðbragðsaðila
Rætt um það hvaða búnað þyrfti að bæta á svæðinu. Ákveðið að kalla eftir upplýsingum frá svæðisstjórn hvaða búnað vantar inn á svæðið sem lagt yrði fyrir á næsta fundi nefndarinnar.
Málsnúmer 2001020 2
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00